Útópíuframtíð á Haiti
Ýmsir arkitektar hafa komið með tillögur að uppbyggingu á Haiti, þeirra á meðal Vincent Callebaut .
Hann kynnti fyrir skömmu nýstárlegar tillögur sínar, en hugmyndina að umhverfisvænu útópíuþorpi sækir hann til kóralrifsins. Hann vill kalla þorpið KÓRALRIF og gerir ráð fyrir að hver bygging gæti hýst 1.000 haitískar fjölskyldur, en fyrirhugaðar byggingarnar eiga að standa á bryggjum sem liggja út í sjó og eiga að þola jarðskjálfta.
Þær yrðu samsettar úr fyrirframbyggðum einingum sem myndu falla inn í hið öldulaga form bygginganna. Sérhvert heimili myndi nýta orku í lágmarki og byggingarnar væru drifnar áfram á endurnýtanlegri orku svo kolefnislosun frá þeim væri algerlega jöfnuð út. Í tillögum Callebaut er gert ráð fyrir að hver fjölskylda fái landsspildu til að rækta sinn eigin mat, þannig að fólk geti líka unnið að eigin matvælaframleiðslu.
Heimild: http://www.huffingtonpost.com/2011/02/19/vincent-callebaut-coral-village_n_824061.html#s241156
Meira hér: http://inhabitat.com/vincent-callebaut-unveils-coral-inspired-carbon-neutral-eco-village-for-haiti/










