Elding er grænjaxl

Elding er grænjaxl

Á síðastliðnum árum hefur mikið verið fjallað um sjálfbæra ferðamennsku, en hún felur í sér að mæta þörfum nútímans án þess að ganga á möguleika framtíðarinnar. Elding Hvalaskoðun hefur ákveðið að tileinka sér umhverfisstefnu í sínum rekstri til að geta stuðlað að sjálfbærri uppbyggingu til framtíðar. Elding vekur athygli á starfsemi sinni sem grænjaxl og samstarfsaðili með Grænum apríl.

Umhverfisvottun í ferðaþjónustu er viljayfirlýsing sem miðar að sjálfbærri þróun og er Elding nú búin að fá fulla umhverfisvottun frá Green Globe og í maí 2006 fékk Elding Bláfánaveifunna á skip sín. Elding rekur ferjuna til Viðeyjar og hefur samning við Reykjavíkurborg um rekstur í Viðey. Elding fékk umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2008.

Green Globe 21 eru alþjóðleg samtök sem vinna að umhverfismálum með ferðaþjónustuaðilum og að vottun umhverfisvænna starfshátta. Fyrirtækið hefur gengið í gegnum ákveðið ferli sem felur í sér umhverfisstefnu, markmiðasetningu, áætlanagerð, umhverfissúttekt og að lokum framkvæmd og rekstur kerfisins. Nánari upplýsingar um vottunina er að finna á heimasíðu Hólaskóla.

Bláfáninn er alþjóðlegt merki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis hafna og baðstranda. Þau fyrirtæki sem hafa fengið Bláfánaveifu hafa gefið fyrirheit um góða umgengni við hafið og umhverfið í heild. Nánari upplýsingar um Bláfánann er að finna á heimasíðu Landverndar.

Umhverfisvottun snýst ekki einungis um umhverfismál, heldur tekur það ferli einnig til þátta eins og siðferðis, sanngjarnra viðskiptahátta og félagslegrar ábyrgðar og mótar Elding sér þ.a.l. heildstæða stefnu í átt til sjálfbærrar þróunar.

Náttúran er helsta aðdráttarafl sem ferðaþjónusta á Íslandi byggir mikið á, það hlýtur því að vera ávinningur fyrir alla að vel sé haldið utan um þá auðlind. Umhverfisstjórnun felur einnig í sér ákveðna sjálfbærni og getur því verið hvati á sitt nánasta umhverfi og rennt styrkari stoðum undir atvinnulíf á svæðinu. Einnig er vert að minnast á að slagorð Reykjavíkurborgar „Pure Energy“ og finnst Eldingu við hæfi að leyfa gestum að upplifa þá hreinu orku sem lífríki hafsins og náttúran hefur upp á að bjóða.

Heimasíða Eldingar

Comments
One Response to “Elding er grænjaxl”
Trackbacks
Check out what others are saying...
  1. [...] Elding er grænjaxl Heimasíða Eldingar [...]



Leave A Comment