Ferðaþjónusta bænda er grænjaxl
Hafið þið tekið eftir græna burstabæjarmerki við þjóðveginn á ferð ykkar um landið eða kannist þið kannski við bæklinginn „Upp í sveit“? Þetta er vörumerki Ferðaþjónustu bænda og eru 160 staðir um allt land innan vébanda samtakanna. Ferðaþjónusta bænda er Grænjaxl og kynnir ykkur þjónustu sína í mánuðinum.
Ferðaþjónusta bænda hf. að Síðumúla 2 sér um sölu og markaðssetningu á þeirri ferðaþjónustu sem félagar bjóða. Skrifstofan er ferðaskrifstofa og gefur út tvo kynningarbæklinga á ári – annan á íslensku en hinn á ensku. Þar að auki eru tvær vefsíður sem kynna þjónustu ferðaþjónustubænda: www.sveit.is og www.farmholidays.is.
Ferðaþjónusta bænda hf. er hlutafélag í eigu bænda og hefur starfað í 18 ár að markaðsetningu og sölu á þjónustu undir merkjum Ferðaþjónustu bænda. Hlutverk ferðaskrifstofunnar er einkum að bóka gistingu fyrir einstaklinga og hópa ásamt heildarskipulagningu á bílaleigupökkum. Ferðaskristofan er í viðskiptum við um 150 ferðaskrifstofur og ferðaheildsala um allan heim.
Félagsmenn innan samtakanna eru meðvitaðir um að nærumhverfið er þeirra helsta auðlind og því mikilvægt að fara vel með hana. Bæði félagarnir og starfsfólk á skrifstofunni hafa markað sér stefnu varðandi sjálfbæra og ábyrga ferðaþjónustu.










Comments
2 Responses to “Ferðaþjónusta bænda er grænjaxl”Trackbacks
Check out what others are saying...[...] Ferðaþjónusta bænda er grænjaxl [...]
[...] Ferðaþjónusta bænda er grænjaxl Heimasíða Ferðaþjónustu bænda [...]