Aprílskógar munu klæða landið

Aprílskógar í Skorradal

Grænn apríl hefur fengið til afnota heljarinnar spildu úr landi Fitja í Skorradal og þar munu gróa Aprílskógar. Fyrstu plöntunum var plantað vorið 2011, strax í kjölfar átaksins, en nemendur við Landbúnaðarháskóla Íslands munu taka að sér skipulag svæðisins undir stjórn Ragnhildar Sigurðardóttur, umhverfisfræðings og lektors við skólann, en hún er einnig bóndi á Álftavatni í Staðarsveit.

Aprílskógar liggja við gönguleiðina yfir í Hvalfjörð og er hugmyndin að þarna rísi íveru- og áningastaður. Fleiri sögur af þessu á síðari stigum.


Vis Aprílskógar på et større kort

Leave A Comment