Chevrolet Volt valinn grænasti bill heims 2011

Chevrolet Volt
Rafbíllinn Chevrolet Volt gerir það ekki endasleppt. Nýlega var hann valinn “World Green Car of the Year 2011” á alþjóðlegu bílasýningunni í New York. “Þetta val undirstrikar mikilvægi tækniframlags Chevrolet á sviði vistvænna ökutækja,” sagði Rick Scheidt, varaforseti markaðsdeildar Chevrolet, “Chevrolet Volt er sannarlega einstakur í sinni röð og markar tímamót á heimsvísu.”

Chevrolet Volt var valinn úr hópi tólf glænýrra bíla hvaðanæva að úr heiminum. Valið stóð endanlega á milli rafbílsins Chevrolet Volt, BMW 320d Efficient Dynamics Edition og Nissan Leaf. Voltinn hafði vinninginn að lokum. Þessi viðurkenning kemur í kjölfar ótal verðlauna sem hann hefur hlotið undanfarin misseri.

Íslendingum mun standa til boða Chevrolet Volt síðar á árinu. Bílabúð Benna er umboðsaðili Chevrolet á Íslandi.

Bílabúð Benna er grænjaxl

Leave A Comment