Ekkert aprílgabb

Grænn apríl í Ráðhúsi Reykjavíkur
Grænn apríl hófst formlega með viðburði í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hélt stutta tölu og klippti á borða til að marka fyrsta skrefið inn í vorið og grænan fókus í apríl.

Ólafur Gunnar Daníelsson frumflutti rapplag um okkur og umhverfið, en lagið er samið í tilefni af Grænum apríl.

Edda Björgvinsdóttir, leikkona flutti fjallkonuræðu um umhverfið og okkur eins og henni er einni lagið.

Fjölmargir Grænjaxlar lögðu leið sína í Ráðhúsið þennan föstudagsmorgun og héldu út í vorið með upplýsingar hvor frá öðrum. Grænjaxlar eru stuðningsaðilar átaksins og standa fyrir fjölmörgum og fjölbreyttum viðburðum allan mánuðinn, sem Grænn apríl vekur athygli á.

Myndir frá Ráðhúsinu

Leave A Comment