Farfuglar eru grænjaxl!

Farfuglar eru félagasamtök sem voru stofnuð 1939. Allt frá upphafi hefur hlutverk Farfugla verið að stuðla að ferðalögum sem auka þekkingu fólks á umhverfinu, umhyggju fyrir náttúrunni og virðingu fyrir menningarlegu gildi borga og bæja í öllum heimshlutum. Farfuglar eru hluti af alþjóðasamtökum Farfugla, Hostelling International, og án efa þekkja landsmenn merki Farfugla vel frá ferðalögum bæði hérlendis og erlendis.

Grænir kostir í gistingu
Farfuglaheimilin á Íslandi eru 37 talsins og bjóða upp á gistingu um allt land. Vinna farfuglaheimilanna er grundvölluð á Gæðastöðlum Farfugla og umhverfsstefnu samtakanna sem var birt árið 1999 en til að vera innan keðjunnar þarf að uppfylla skilyrði á sviði umhverfismála. Aðstaða heimilanna er ólík og þau eru mislangt á veg komin í umhverfisstarfi. Þau heimili sem standa sig sérstaklega vel og uppfylla ákveðin viðmið bera merkið Grænt farfuglaheimili og eru sérmerkt í öllu kynningarefni til að auðvelda gestum að velja grænni kosti. Í Reykjavík eru tvö farfuglaheimili, í Laugardal og á Vesturgötu, og þau eru einu umhverfisvottuðu gististaðirnir á höfuðborgarsvæðinu. Undir merkjum Farfugla er því um að velja marga skemmtilega og græna gististaði víða um land.

Heimasíða Farfugla

Comments
2 Responses to “Farfuglar eru grænjaxl!”
Trackbacks
Check out what others are saying...
  1. [...] Farfuglar eru grænjaxl [...]



Leave A Comment