Hefur tínt upp 250 kíló af rusli


Þórdís G. Arthúrsdóttir er okkur öllum góð fyrirmynd. Hún las bókina “Konur geta breytt heiminum” eftir Guðrúnu Bergmann fyrir hálfu öðru ári síðan. Í kjölfarið tók hún sig til, hætti að röfla yfir ruslinu sem fauk um allar jarðir í nágrenninu – og tínir það nú saman á daglegum gönguferðum. Þórdís er með áráttu fyrir tölum og hefur haldið til haga hversu mikið magn af rusli hún hefur tínt upp af götu sinni á einu og hálfu ári. 250 kíló eða 1/4 úr tonni er það magn, sem Þórdís hefur tínt saman, borið heim, komið í flokkun og urðun. Þetta sýnir að við getum hvert og eitt breytt heiminum í kringum okkur.
Takk fyrir að vera til Þórdís!

Smelltu myndbandinu í símann
qrcode

Leave A Comment