Hybridbíllinn er 110 ára!


Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna, segir okkur frá því sem er að gerast í bílamálunum. Bílabúð Benna hefur ávallt litið til framtíðar hvað varðar vörur fyrirtækisins og samhengi við umhverfð.

Á síðasta ári samþykkti Alþingi ný vörugjöld fyrir bifreiðar, sem þýðir að bílar sem eru að menga minna og eyða minna, þeir lækkuðu í verði. Með hækkandi bensínverði hafa margir bíleigendur fengið spark í rassinn, en mest seldi bíllinn hjá Bílabúð Benna um þessar mundir er einmitt sparneytinn Chevrolet Spark. Stærri bílar geta einnig verið sparsamir og umhverfisvænir, því bílar hafa breyst mikið og sérstaklega í umhverfisvænu áttina undanfarin ár. Fyrir 110 árum framleiddi Porche bíl, sem gekk bæði fyrir rafmagni og bensíni og var þannig heilli öld á undan því sem við erum að ræða og óskum eftir þessa dagana.

Bílabúð Benna er grænjaxl
Heimasíða Bílabúðar Benna

Smelltu myndbandinu í símann
qrcode

Comments
One Response to “Hybridbíllinn er 110 ára!”
Trackbacks
Check out what others are saying...
  1. [...] Benna er grænjaxl Hybridbíllinn er 110 ára! jQuery(document).ready(function() { jQuery.periodic(wpbrrefresh, { frequency: 10, fromtype: [...]



Leave A Comment