Íbúarnir gera kröfur
Snæfellsnes er fyrsta landsvæðið í Evrópu sem fær umhverfisvottun Green Globe-samtakanna og það fjórða í heiminum. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ segir undirbúningsferlið hafi krafist mikillar vinnu, enda sveitarfélögunum settar strangar kröfur til að fá slíka alþjóðlega vottun.
»Þegar við vorum að stíga fyrstu skrefin í þessari vinnu var gert hálfgert grín að okkur, vísur á þorrablótum og svo framvegis. Í dag er staðan allt önnur. Nú gera íbúarnir kröfur til sveitarfélaga hérna á Snæfellsnesi um að þau standi sig vel í umhverfismálum. Grænfáninn blaktir við hún í grunnskólum og leikskólum á svæðinu, en til að fá að flagga honum þarf að uppfylla ýmsar kröfur í umhverfismálum. Tvær hafnir á svæðinu hafa fengið Bláfánann, sem er alþjóðlegt umhverfismerki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis hafna”, segir Kristinn.









Comments
One Response to “Íbúarnir gera kröfur”Trackbacks
Check out what others are saying...[...] Íbúarnir gera kröfur. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Heimasíða Snæfellsbæjar [...]