Jón Gnarr – Okkur má ekki vera sama!
Það er svo margt sem við getum gert og bætt okkur -aðallega í ruslamálum. Þar erum við Reykvíkingar langt, langt á eftir öðrum borgum, þar getum við bætt okkur gífurlega mikið.
Reykjavík, sem borg hefur möguleika, sem aðrar borgir hafa ekki séns í, við höfum möguleika á að geta orðið, ef við tækjum höndum saman, hreinasta og grænasta borg í heimi. Það er mikilvægt fyrir margt.
Með aukinni moltu- og jarðvegsgerð þá gætum við aukið gróðursæld í Reykjavík. Íslenskur jarðvegur er frekar rýr. Ég set allan lífrænan úrgang í garðinn hjá mér og ég hef séð á síðustu sjö árum alveg gríðarlegan mun á vexti plantnanna. Plönturnar verða hreinlega fallegri. Gróður er eins og annað líf, hann verður að nærast á einhverju og því betur nærður, því glaðari er hann.
Við erum svo dekruð í aðgengi okkar að t.d. vatni, við höfum svo ótakmarkaðan og hagkvæman aðgang að vatni og þetta gerir okkur svolítið dekruð. Það hafa ekki allir þennan aðgang að vatni eins og við. Við þurfum að læra að meta það og vera þakklát fyrir það.
Mér finnst mjög mikilvægt að tala um umhverfismeðvitund, að við séum meðvituð um það sem við erum að gera og hvaða afleiðingar það hefur í för með sér og hvernig við gætum gert hlutina öðruvísi. Það setur allt í annað samhengi. Við gætum orðið fyrsta borgin í heiminum, sem notar ekki olíu heldur metan, því við getum framleitt metan úr sorpi og knúið alla bíla í Reykjavík. Það myndi vera mjög gott ímyndarlega fyrir okkur, bensínlausa borgin. Við myndum spara gífurlega á því og við værum ekki háð löndum, sem við erum ekki sátt við.
Þetta og fleira segir borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr í tilefni af Grænum apríl.








