Komum okkur upp úr ruslatunnunni!


Gyða Steinsdóttir er bæjarstjóri í Stykkishólmsbæ. Stykkishólmsbær er grænjaxl og þar eru dregnir að hún bæði grænir og bláir fánar.

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi eru fyrstu vottuðu sveitarfélög á Íslandi og árið 2008 hóf Stykkishólmsbær, fyrst sveitarfélaga á Íslandi, flokkun á sorpi. Íbúarnir njóta góðs af flokkuninni með gróðurvænni mold og mun minna er flutt í urðun í Borgarfjörð. Stykkishólmsbær sparar urðunarkostnað, sem hefur dregist saman samkvæmt tölum frá Íslenska Gámafélaginu. Næst á dagskrá er að kynna flokkunarkerfið betur fyrir ferðafólki, því bæjarbúar finna fyrir aukinni urðun þegar fjölgar á tjaldstæðinu yfir sumartímann.

Sem íbúi í bænum segir bæjarstjórinn að hún hafi lært heilmikið af þessu. Hún hugi öðruvísi að innkaupum, flokki líka þegar hún mætir sem gestur í önnur bæjarfélög og hvetur fólk til að huga að framtíðinni. Við eigum ekki að búa í risastórri ruslatunnu!

Umhverfisstefna leikskólans í Stykkishólmsbæ
Heimasíða Stykkishólmsbæjar

Smelltu myndbandinu í símann
qrcode

Leave A Comment