Náttúran er grænjaxl

Náttúran.is er upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt. Náttúran.is er grænjaxl og vinnur með Grænum apríl að því að vekja athygli á grænum og umhverfisvænum vörum, þjónustu og þekkingu í mánuðinum.
Náttúran.is er sjálfstætt starfandi vefsetur með aðaláherslu á að þjóna hinum almenna neytanda með áreiðanlegum upplýsingum um allt sem snertir umhverfi okkar og heilsu. Í raun er hér allt undir, nærumhverfi okkar og náttúran sjálf sem og heimilið, neyslan og fyrirtækin sem upplýstir borgarar vilja fá til aðstoðar við að skapa sjálfbæra framtíð.
Jafnt fyrirtækjum sem félagasamtökum og almenningi er boðið að nýta sér þennan óháða vettvang til að koma upplýsingum á framfæri og eiga skoðanaskipti.
Náttúran.is á að vera náttúrutenging nútímamannsins og „umhverfislögga“ í jákvæðum skilningi.
Náttúran gefur góð ráð
Þátttakendur í Grænum apríl á Græna kortinu








