Páll Óskar með græna fingur

Í gamla daga áttum við svo fallegan bakgarð á Sólvallagötunni, þar sem nágrannarnir voru í samkeppni um það hver var með flottasta garðinn. Ég er búinn að vera mjög duglegur undanfarin ár að endurvinna og endurnýta. Ég þurfti að hafa fyrir því til að byrja með, fyrst voru það dagblöðin, svo plastið, mjólkurfernurnar – og ég á eftir að ganga lengra. Ég byrjaði að gera þetta samviskunnar vegna. Ég byrjaði á flokkun eftir að ég var í New York 1993, þá tók ég eftir því að allir voru að gera sitt besta þar til að flokka rusl. Smám saman dýpkar skilningurinn á þessu og dómgreindin eykst og nú er þetta orðið sjálfsagt mál.

Þetta segir Páll Óskar, einhver dáðasti listamaður þjóðarinnar.

Leave A Comment