SORPA er grænjaxl

Sorpa 20 ára merki

SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garðabær og Álftanes. SORPA fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og er sannkallaður grænjaxl.

Verkefni byggðasamlagsins eru m.a. eftirfarandi:
• Að útvega og starfrækja urðunarstað fyrir sorp.
• Bygging og rekstur móttökustöðva.
• Flutningur á sorpi frá móttökustöðvum.
• Framleiðsla og sala á eldsneyti og orku úr sorpi eftir því sem hagkvæmt þykir.
• Vinnsla og sala á efnum úr sorpi til endurnýtingar eftir því sem hagkvæmt þykir.
• Samstarf og viðskipti við fyrirtæki er starfa á sviði endurvinnslu úrgangsefna eftir því sem hagkvæmt þykir.
•  Að fylgjast með tækniþróun á sviði sorpeyðingar og endurvinnslu.
•  Að sjá um eyðingu hættulegra úrgangsefna.
•  Að þróa nýjar aðferðir til þess að vinna verðmæti úr úrgangsefnum.
•  Að sinna kynningu á verkefnum SORPU bs. og gildi umhverfissjónarmiða við meðhöndlun sorps.
•  Gera svæðisáætlanir sbr. lagakröfur hverju sinni.
•  Önnur verkefni sem aðildarfélögin fela byggðasamlaginu sérstaklega.

Áherslur SORPU eru:
• Að vera í fararbroddi á Íslandi í meðhöndlun úrgangs og skuldbinda sig til að starfsemi fyrirtækisins sé í sátt við umhverfið.
• Að vera leiðandi í öflun og miðlun þekkingar, nýsköpun og innleiðingu bestu aðferða.
• Að efla jákvæða ímynd fyrirtækisins með arðbærum rekstri, markvissri þjónustu, frumkvæði, trausti og trúverðugleika.
• Að gera fyrirtækið öruggan og áhugaverðan vinnustað með þjálfað og lipurt starfsfólk.
• Að tryggja góð samskipti starfsmanna, eigenda, samstarfsaðila og viðskiptavina.
• Að uppfylla kröfur stjórnvalda og fylgja vottuðu gæðastjórnunarkerfi samkvæmt ISO 9001 og vinna að stöðugum umbótum á því.

Umhverfisstefna SORPU
Góði hirðirinn

Comments
One Response to “SORPA er grænjaxl”
Trackbacks
Check out what others are saying...
  1. [...] Sorpa er grænjaxl [...]



Leave A Comment