Tilboð á lífrænum súrdeigsbrauðum hjá Brauðhúsinu

Brauðhúsið Grímsbæ

Til að slá botninn í Grænan apríl er Brauðhúsið í Grímsbæ með tilboð á lífrænum súrdeigsbrauðum út mánuðinn. Fyrstir koma, fyrstir fá 2,5 kg. lífrænt speltmjöl frá Saltå + súrdeig og uppskrift einungis 1.000 kr.

Brauðhúsið í Grímsbæ notar engin kemísk bökunarefni og býður upp á brauð og kökur úr lífrænt ræktuðu hráefni. Höfuðmarkmiðið er að framleiða hágæðavöru, en allt korn og mjöl er flutt inn frá myllum í Svíþjóð og Danmörku, sem framleiða eingöngu lífrænt ræktað korn. Það skiptir miklu hvernig mjöl er meðhöndlað. Þó gróft mjöl sé mjög steinefnaríkt kemst það ekki alltaf til skila í meltingunni. Steinefnin eru að mestu bundin í svokölluðum fýtin-samböndum og súrdeig er heppilegasta aðferðin til að leysa þau úr viðjum.

Í kökurnar er notað íslenskt smjör, lífrænt ræktað mjöl, hamingjuegg, hunang og hrásykur. Fosfatfrítt vínsteinslyftiduft og náttúruleg bragðefni. Öll framleiðslan er laus við kemísk geymslu-, litar- og bragðefni. Þá er enginn hvítur sykur notaður við baksturinn.

Hægt er að hafa samband við Brauðhúsið með því að senda póst á: braudhus@isl.is

Leave A Comment