Farfuglaheimilið í Laugardal opnar Grænt hringborð

Græna Hringborð Farfugla í Laugardal
Upplýsingarveita um græna kosti í ferðamennsku opnaði í dag á Farfuglaheimilinu í
Laugardal. Að Græna hringborðinu standa Farfuglaheimilið í samstarfi við verkefnið
Lifandi vegvísa á Höfuðborgarstofu, en þar geta ferðamenn og heimafólk fengið
upplýsingar um græna vöru og þjónustu alla daga í sumar.

Þetta er nýjung í íslenskri ferðaþjónustu og hugsuð til að efla umhverfisvitund og
ábyrgðarkennd íslenskra og erlendra ferðamanna. Gestir eru hvattir til að ganga um
náttúruna af virðingu og gera sitt besta til að draga úr umhverfisáhrifum ferðalagsins og
njóta menningar og fjölbreyttra samfélaga. Með þjónustu Græna hringborðsins er
gestum og gangandi gert auðveldara að njóta sjálfbærs lífstíls og ferðalaga.

Græna borgin Reykjavík og umhverfi hennar, náttúra og útivistarmöguleikar eru kynnt,
en borgin komst í úrslit sem Græn borg Evrópu á síðasta ári. Græna hringborðið kemur
einnig til með að bæta enn frekar blómlegt lífið í Laugardalnum og hvetja gesti
borgarinnar til að nýta sér það sem svæðið hefur upp á bjóða og styrkja þannig
nærumhverfið.

Auk þess að þjónusta borgarbúa og ferðamenn er Græna hringborðið starfsnám fyrir
ungt fólk. Græna hringborðið er vettvangur fyrir starfsnema til að auka þekkingu sína á
umhverfinu, umhyggju fyrir náttúrunni og virðingu fyrir menningu þjóða, fræðast meira
um vistvænan lífsstíl og ferðamennsku og þjálfa tungumálakunnáttu sína og
samskiptahæfileika. Farfuglaheimilið í Laugardal er fjömenningarlegur vinnustaður með
alþjóðlega tengingu og sterk mannúðargildi. Það er mikils virði fyrir ungt fólk að læra á
vinnustað þar sem umhverfisvottun er ein af meginforsendum trausts reksturs og taka
þá reynslu með sér út í lífið.

Riddarar Græna hringborðsins vill biðla til borgarbúa og fyrirtækja að láta vita af grænni
þjónustu og vöru og deila góðum hugmyndum og koma við í Laugardalnum eða hafa
samband í síma 553 8110 eða á greendesk@hostel.is.

Leave A Comment