GRÆNIR HÆLAR í samvinnu við EarthCheck

Stutt er síðan GRÆNIR HÆLAR tóku að sér að vera umboðsaðilar EarthCheck á Íslandi, en eigandi fyrirtækisins Guðrún Bergmann hefur þó verið tengd þessu umhverfisvottunarmerki allt frá árinu 1999, meðan það enn hét Green Globe. Fyrstu kynni hennar af vottunarmerkinu voru meðan hún stundaði nám í ferðamálafræðum við Háskóla Íslands. Á leið í Bóksölu stúdenta einn daginn rakst hún á bækling frá ferðaskrifstofunni Exodus. Í honum var merki Green Globe og hún ákvað á því augnabliki að þetta vottunarmerki skyldi hún kynna sér nánar.

Strax í upphafi næsta árs var hún komin í samband við tengilið Green Globe í Bretlandi og í mars árið 2000, þegar Hótel Hellnar var formlega stofnað, var það samtímis skráð í vottunarferli Green Globe, fyrst allra ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi. Eftir undirbúning og aðlögun var hótelið vottað árið 2002. Í framhaldi af því hóf hún að kynna vottunarmerkið frekar hér á landi, bæði á ferðamálaráðstefnum og eins til fyrirtækja og sveitarfélaga. Árangurinn lét ekki á sér standa, þótt þetta væri í árdaga umhverfisvottunar hér á landi og eru nú eftirfarandi fyrirtæki og sveitarfélög vottuð af EarthCheck.

Hvalaskoðunarfyrirtæki Elding í Reykjavík; söluskrifstofa Ferðaþjónustu bænda; Hótel Hellnar á Snæfellsnesi og Íshestar í Hafnarfirði. Einnig er ferðaþjónusta Orkuveitunnar á Hengilsvæðinu í undirbúningsferli fyrir fyrsta stig vottunar og Ferðaskrifstofa Harðar Erlingssonar hefur mætt viðmiðum EarthCheck.
Sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi, Eyja- og Miklaholtshreppur; Snæfellsbær; Grundarfjörður; Helgafellssveit og Stykkishólmur hlutu fyrst vottun árið 2008, ásamt Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.

Eru þau leiðandi í vottun sveitarfélaga, ekki bara hér á landi, heldur á norðurhveli jarðar.

Vottun EarthCheck er í raun úttekt og viðurkenning 3ja aðila á því að viðkomandi fyrirtæki eða sveitarfélag sé að vinna þá umhverfisvinnu sem það segist vera að vinna. Jafnframt veitir vottun ramma um umhverfisstarf fyrirtækja og sveitarfélaga og gerir kröfu um jafnar og ákveðnar framfarir frá ári til árs. Vottun er líka öryggisstimpill gagnvart neytendum, sem vita þá að þau eru í hreinu umhverfi og þar er verið að stefna að sjálfbærari framtíð.
Nánari upplýsingar um EarthCheck veitir Guðrún Bergmann.
bergmann@greenheels.com – Sími: 698-3815

Heimasíða Grænna hæla: www.graenirhaelar.is
facebook.com/graenirhaelar

Smelltu myndbandinu í símann:
qrcode

Comments are closed.