Blái herinn
Blái herinn var stofnaður árið 1998 og hefur beitt sér fyrir margvíslegum umhverfisverkefnum, einkum hvað snertir hreinsun strandlengjunnar og sjávar. Blái herinn hreinsar hafnir og strandlengjuna af hvers kyns rusli, spilliefnum og öðru því sem mengað getur hafið.
Árið 2003 hlutu samtökin Umhverfisverðlaun Reykjanesbæjar.
Árið 2004 hlutu þau Umhverfisviðurkenningu Pokasjóðs og Ungmennafélags Íslands.
Tómas J. Knútsson, atvinnukafari, stofnaði Bláa herinn og hefur á þeim 15 árum, sem liðin eru frá stofnun haft forgöngu um að hreinsa hundruðir tonna af rusli frá ströndum landsins. Hundruðir rafgeyma hafa skilað sér upp úr höfnum í endurvinnslu. Einnig hefur Tómas verið óþreytandi við að virkja ungmennin í kringum sig til starfa og þar með vakið með þeim kærleika fyrir umhverfinu.
Þú getur fræðst betur um Bláa herinn á heimasíðunni www.blaiherinn.is
Og tekið virkan þátt í starfinu með því að láta þér líka við www.facebook.com/pages/Blái-herinn/164344336955366








