Grænn starfsframi

Skortur á sérmenntuðu fólki í umhverfisfræðum veldur mikilli eftirspurn. Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands menntar fólk til framtíðar í þeim fræðum.

Kristín Vala Ragnarsdóttir er forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Áður starfaði hún sem prófessor í jarðvísindum við Háskólann í Bristol á Englandi. Kristín Vala lauk námi í jarðfræði við Háskóla Íslands árið 1979 og doktorsprófi frá Northwestern University í Bandaríkjunum árið 1984. Eftir að hafa sinnt rannsóknarstörfum í París og við Northwestern háskólann réði hún sig árið 1989 til starfa við Háskólann í Bristol og varð prófessor við þann skóla árið 2001.

Helsta áhugamál hennar er sjálfbær þróun til framtíðar og hefur hún lagt áherslu á að efla þann þátt innan námsbrauta Verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Sjálf hefur hún í mörg ár stundað jarðvegsrannsóknir, en gæði og magn jarðvegs rýrnar nú hraðar á jörðinni en hann endurnýjar sig. Kristín Vala er varaformaður í Balaton-hópnum, sem samanstendur af alþjóðahópi sérfræðinga sem sérhæfa sig í að finna sjálfbærar lausnir fyrir samfélög jarðar.

Smelltu þér á heimasíðuna og kannaðu námið. http://www.hi.is/verkfraedi_og_natturuvisindasvid/forsida_verkfraedi_og_natturuvisindasvids

Comments are closed.