Grænt hár
Hárgreiðslustofan er staðurinn þar sem við komum til að hressa uppá okkur með nýrri klippingu og stundum nýjum lit. Dvölin er ánægjuleg og við hoppum glöð út í daginn. En það eru til dökkar hliðar á hárgreiðslustarfinu, sem ekki fara hátt. Á hárgreiðslustofum er unnið með lögleg eiturefni, sérstaklega í litun. Þessi efni valda asma og öndunarfærasjúkdómum og jafnvel aukinni tíðni krabbameins hjá hárgreiðslufólki. Rannsókn í Danmörku leiddi t.d. í ljós 30-60% hærri tíðni blöðrukrabbameins hjá hárgreiðslufólki en öðrum starfsstéttum.
Sem betur fer er til grænn valkostur þegar kemur að því að líta vel út og fylgja nýjustu tísku í hárstíl og lit. Hárstofan Feima á Óðinsgötu er græn stofa. Þar er unnið með umhverfisvæn og náttúruleg efni og fylgt stífri umhverfisstefnu. Unnið er með svansmerktar vörur og t.d. notað eplaedik í stað kemísks festis þegar hárið er litað. Og það virkar!
Grænn apríl heimsótti Feimu og kannaði nánar hvernig Græn hárstofa starfar.
Þú getur kynnst Feima nánar með því að smella þér hingað: www.facebook.com/feima.harstofa








