Komdu heilsunni í lag

Heilsa ehf er elsta fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á lífrænum matvörum, jurtum, fæðubótarefnum, vistvænum snyrtivörum og hreingerningarvörum. Fyrirtækið hefur verið starfrækt í 40 ár.
Heilsa flytur inn vörur frá flestum Evrópulöndum, Skandinavíu, Bandaríkjunum og Kanada. Mikið er lagt upp úr gæðum og er nánast öll matvaran lífrænt vottuð og vítamínin eru ýmist lífræn eða náttúruleg, án auk- og rotvarnarefna. Vörurnar frá Heilsu fást í öllum heilsubúðum, apótekum og helstu matvöruverslunum á Íslandi.

Þórarinn Þórhallsson er framkvæmdastjóri Heilsu og hefur sjálfur skipt yfir í hreinlætisvörur úr jurtaríkinu eftir að fjölgaði á heimilinu.

Á heimasíðunni www.heilsa.is er aragrúi upplýsinga um heilsufar, bætiefni, ýmsar rannsóknir, snyrtivörur og efni, sem tekur á umgengni okkar við umhverfið.
Þú getur einnig látið þér líka við Heilsu á Facebook með því að smella hér: www.facebook.com/pages/Heilsa/298693703685

Comments are closed.