Sjálfbærari byggingar
Fimm arkitektastofur í Reykjavík sameinuðust fyrir nokkrum árum um vinnu að rannsóknarverkefni sem þau kalla Betri borgarbragur (bbb.is). Verkefnið verður unnið á þremur árum og hlaut Öndvegisstyrk frá Tækniþróunarsjóði (RANNÍS) í fyrsta sinn sumarið 2009. Að verkefninu standa 5 arkitektastofur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskóli Íslands. Arkitektastofurnar eru Arkitektúra, ASK arkitektar, Gláma Kím arkitektar, Hús og skipulag, Kanon arkitektar og Teiknistofan Tröð.
Eitt af markmiðum verkefnisins er að móta leiðir til að hafa áhrif á skipulagsmál til framtíðar, skilgreina verkfæri til að bæta byggt umhverfi og stuðla að vistvænni og sjálfbærri byggð. Reynt er að skilgreina hvað felst í hugtakinu „umhverfisvænt og sjálfbært byggt umhverfi” fyrir íslenskar aðstæður, staða mála hérlendis metin og bent á leiðir til úrbóta.
Fjallað er um skilgreiningar á sjálfbærni og gæðum í skipulagi þéttbýlis. Hagrænar forsendur fyrir þéttingu byggðar eru kannaðar og lagt mat á samfélagslegan kostnað samgangna og ávinning af vistvænu skipulagi.
Verkefnið tekst á við skipulagsmál í víðu samhengi og mismunandi mælikvarða, allt frá stjórnsýslu og svæðisskipulagi, útfærslu á aðalskipulags- og deiliskipulagsstigi og niður í göturými, byggingargerðir, orkunýtingu og efnisnotkun.
Í verkefninu verða skipulagsmál á Íslandi sett í samhengi við alþjóðlegar kenningar og viðleitni til þróunar samfélagsins til sjálfbærra hátta. Tengsl eru fundin við hugmyndastrauma og áhrif þeirra könnuð við íslenskar aðstæður. Stuðlað verður að notkun vistvænna lausna í skipulagi, en slíkar aðferðir eru mjög skammt á veg komnar hérlendis- og raunar einnig víða erlendis.
Kannað verður hver sérstaða Íslands er, m.t.t. samfélagshátta og hefða, orkunotkunar, veðurfars, sólstöðu, byggingarhefðar og efnisnotkunar. Rannsóknin kann að leiða af sér nýja sýn, áherslur eða aðferðir við mótun bæjarrýmis. Verkefnið mun stuðla að þróun íslenskrar menningarstefnu í skipulagi.
Heimasíða verkefnisins bbb.is er hafsjór af upplýsingum.








