Samþykktir
Samþykktir fyrir félagasamtökin Grænan apríl
1. gr.
Félagið heitir: Grænn apríl – kt. 691195-2799
2. gr.
Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík
3. gr.
Tilgangur félagsins er að vinna að því að gera aprílmánuð að grænum mánuði á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að kynna og bjóða upp á upplýsingar um þekkingu, vöru og þjónustu sem telst vera græn og umhverfisvæn.
- Að vekja landsmenn til frekari vitundar um að við þurfum að gæta að náttúrunni og umhverfi okkar.
- Að hvetja aðila sem selja þekkingu, vöru eða þjónustu sem er annað hvort umhverfisvottuð, af Fair Trade uppruna eða telst umhverfisvæn á einn eða annan máta, til að kynna sig og starf sitt sérstaklega í apríl.
- Að hvetja til umræðu um mikilvæg skref sem taka verður til að vernda náttúru landsins svo að komandi kynslóðir fái notið hennar á sama hátt og við njótum hennar í dag.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að standa fyrir herferð, þar sem ríkisstjórnin, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar eru hvattir til að kynna fyrir landsmönnum þá þekkingu, vöru og þjónustu sem þau bjóða upp á sem er græn og umhverfisvæn og stuðlar að sjálfbærara samfélagi á Íslandi.
5. gr.
Stofnfélagar eru:
1. Guðrún G. Bergmann, Þórðarsveig 17, 113 Reykjavík, kt. 251050-2799
2. Maríanna Friðjónsdóttir, Hlíðarvegi 54, 200 Kópavogur, kt. 131153-5389
3. Sólveig Eiríksdóttir, Laugateig 50, 104 Reykjavík, kt. 240960-2579
4. Valgerður Matthíasdóttir, Klapparstíg 5a, 101 Reykjavík, kt. 190353-5169
5. A. Agnes Gunnarsdóttir, Dalaþingi 12, 203 Kópavogur, kt. 160176-3429
6. Dofri Hermannsson, Logafold 19, 112 Reykjavík, kt. 250969-5389
.6. gr.
Félagið er opið öllum einstaklingum, félögum og fyrirtækjum sem vilja vinna í anda þeirrar stefnu sem það setur sér. Félagar greiða árgjald í félagið sem stjórn þess ákveður hverju sinni.
7. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð þremur félagsmönnum, það er formanni og tveimur meðstjórnendum. Auk þess skal kosinn einn varamaður í stjórn. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, en formaður skal kosinn á hverjum aðalfundi. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfund þegar þurfa þykir.
Daglega umsjón félagsins annast formaður þess eða starfsmenn þess. Firmaritun félagsins er í höndum stjórnarformanns hverju sinni.
8. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
9. gr.
Árgjald félagsins er 2.500 krónur og skal það innheimt í febrúar ár hvert. Stjórn félagsins tekur ákvörðun um breytingar á árgjaldi á stjórnarfundi.
10. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang félagsins og til að efla starfsemi þesss enn frekar.
11. gr.
Ákvörðun um slit félagsins verður tekin á stjórnarfundi með einföldum meirihluta og renna eignir þess þá til félaga/samtaka sem starfa í svipuðum tilgangi.
12. gr.
Félagið vinnur af heilindum að markmiðum sínum og kynnir þau á vefsíðu sinni www.graennapril.is
13. gr.
Aðalfund félagsins skal halda eigi síðar en í maí ár hvert. Til aðalfundar skal boðað með löglegum hætti og telst hann gildur ef fleiri en stjórnarmenn mæta.
14. gr.
Brjóti félagsmenn í bága við stefnu og markmið félagsins með framkomu sinni eða á annan hátt, hefur stjórnin heimild til að vísa þeim úr félaginu. Hafi félagar þá þegar greitt félagsgjald fyrir það starfsár, skal það ekki endurgreiðast.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins í Reykjavík þann 20. janúar 2011.








