Farfuglar eru grænjaxl!
Farfuglaheimilin á Íslandi eru 37 talsins og bjóða upp á gistingu um allt land. Vinna farfuglaheimilanna er grundvölluð á Gæðastöðlum Farfugla og umhverfsstefnu samtakanna sem var birt árið 1999 en til að vera innan keðjunnar þarf að uppfylla
skilyrði á sviði umhverfismála.
Græn syndaaflausn? Fríkirkjan er grænjaxl
Miðvikudagskvöldið þann 27. apríl verður efnt til samveru í Fríkirkjunni í Reykjavík undir yfirskriftinni UMHVERFISHUGLEIÐING. Þar verður kastljósinu sérstaklega beint að umhverfismálum bæði í tali og tónum.
Tengi er grænjaxl
Skólp er mengunarvaldur alls staðar þar sem því er veitt beint út í umhverfið sem felst í uppsöfnun lífræns úrgangs sem inniheldur mikið magn örvera. Tengi flytur inn vottaðar og umhverfsvænar skolphreinsistöðvar, sem eru góður kostur fyrir t.d. sumarbústaðinn.
SORPA er grænjaxl
SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garðabær og Álftanes. SORPA fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og er sannkallaður grænjaxl
Actavis er grænjaxl
Sem dæmi um markmiðasetningu og góðan árangur í umhverfismálum hjá Actavis, þá er sorp sem fellur til
við reksturinn endurunnið eða endurnýtt. Á árinu 2006 fóru einungis 26% sorps í endurvinnslu eða endurnýtingu, í lok ársins 2010 var hlutfallið komið í 85% og er enn að aukast.
Fatasöfnun Rauða kross Íslands er grænjaxl
Deildir Rauða krossins um allt land safna notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Þetta er ekki enungis frábær endurvinnsla heldur leggur fólk Rauða krossinum lið með því að gefa fatnað og styrkir neyðaraðstoð bæði hér á landi og erlendis. Fatasöfnunin er grænjaxl og tekur heilshugar þátt í Grænum apríl.
Djúpivogur, vinalegur og vistvænn er grænjaxl
Djúpavogshreppur er syðsta sveitarfélagið í Suður-Múlasýslu. Djúpavogshreppur er grænjaxl og tekur þátt í Grænum apríl af fullum krafti. Djúpavogshreppur er rómaður af náttúrufegurð, sem einkennist af ægifögrum fjörðum, skógiklæddum dölum, stórkrýti, klettaborgum og strýtum. Yfir þessu tróna tignarlegir fjallgarðar sem teygja sig upp úr vogskorinni strandlínu.
Gló er grænjaxl
Gló er lífrænn veitingastaður í Listhúsinu, Laugardal. Gló er grænjaxl og tekur heilshugar þátt í Grænum apríl.
Á Gló er lögð áhersla á heildarupplifun gesta af heimsókninni á staðinn með samspili góðrar hönnunnar og hollrar fæðu.
Bílabúð Benna er grænjaxl
Bílabúð Benna er stoltur grænjaxl og styður Grænan apríl. Fyrirtækið er rótgróið, stofnað árið 1975 og hélt því upp á 35 ára afmæli sitt í fyrra, árið 2010. Bílabúð Benna er umboðsaðili bílaframleiðendanna Porsche, Chevrolet og SsangYong auk þess að vera með umboð fyrir hjólbarða frá Toyo Tires og BFGoodrich sem og fjölda umboða fyrir aukahluti í bifreiðar.
Kjaran er grænjaxl
Kjaran gólfbúnaður er grænjaxl og tekur þátt í grænum apríl. Kjaran sérhæfir sig í innflutningi og sölu á vistvænum gólfefnum frá Forbo. Forbo hefur framleitt náttúruleg línoleumgólfefni í meira en hundrað ár.
Græni Hlekkurinn er grænjaxl
Græni Hlekkurinn var stofnaður árið 2002 með það að markmiði að markaðssetja lífrænt ræktað grænmeti. Stofnendur eru sjálfir garðyrkjubændur í lífrænni ylrækt á Garðyrkjustöðinni Akur í Laugarás. Græni Hlekkurinn er grænjaxl og tekur virkan þátt í Grænum apríl.
Náttúran er grænjaxl
Náttúran.is er upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt. Náttúran.is er grænjaxl og vinnur með Grænum apríl að því að vekja athygli á grænum og umhverfisvænum vörum, þjónustu og þekkingu í mánuðinum.
Kópavogsbær er grænjaxl
Kópavogsbær er Grænjaxl. Kópavogsbær hefur unnið ötullega að umhverfismálum undanfarna áratugi en sést það einkum á fallegum opnum svæðum og frágangi og umhverfi íbúðarsvæða. Síðustu misseri hefur verið unnið að því að gera metnaðarfulla stefnu varðandi ýmsa þætti í umhverfismálum með það í forgrunni að bæta lífsgæði íbúa og vernda náttúru- og menningarminjar.
EarthCheck og umhverfisstarf í Grundarfirði
Grundarfjarðarbær er þátttakandi í verkefninu Grænn apríl og er hreinræktaður grænjaxl, vegna þess að hvert einasta skref í átt að betri umgengni um umhverfið skiptir máli. Það er á ábyrgð okkar allra að gera það sem í okkar valdi stendur. Því við höfum aðeins eina jörð og hana höfum við að láni frá afkomendum okkar.
Seeds er grænjaxl
SEEDS eru íslensk frjáls félagasamtök sem taka á móti erlendum sjálfboðaliðum til þess að sinna umhverfis- og menningarmálum í samstarfi við sveitarfélög, samtök og einstaklinga. Seeds er grænjaxl og tekur virkan þátt í Grænum apríl.
Iðnaðarráðuneytið er grænjaxl
Iðnaðarráðuneytið er grænjaxl. Undir ráðuneytið heyra fjölmargar stofnanir, sem hafa umhverfis- og orkumál á sínum borðum. Það gefur því auga leið að samspil manns og umhverfis er stór þáttur í vinnu Iðnaðarráðuneytisins.
IKEA er grænjaxl
IKEA á Íslandi er Grænjaxl. Við viljum taka þátt í að búa til heim þar sem við hugsum betur um umhverfið, auðlindirnar og hvert annað. Við vitum að stundum erum við hluti af vandamálinu. Þess vegna leggjum við hart að okkur til að verða hluti af lausninni.
Nings er grænjaxl
Þegar rýnt er á bak við framhliðina hjá Nings kemur í ljós að eigendum hefur alltaf verið umhugað um umhverfismál, því þau fara vel saman við heilsu og hollt mataræði.
Prentsmiðjan Oddi er grænjaxl
Prentsmiðjan Oddi ehf. hefur verið leiðandi í umhverfismálum hér á landi í prentiðnaði. Prentsmiðjan Oddi er grænjaxl og tekur af heilum hug þátt í starfi Græns apríl. Umhverfismál hafa ávallt skipað stóran sess í rekstri fyrirtækisins og hafa eigendur þess ávallt leitast við að fara vel með hráefni og draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins á skilvirkan hátt. Stefna fyrirtækisins er að viðskiptavinir geti treyst því að sú vara sem við seljum sé framleidd með þeim hætti að sem minnst röskun verði á umhverfinu við framleiðsluna.
Svanurinn auðveldar þér valið
Svanurinn og Umhverfisstofnun eru grænjaxlar og taka þátt í Grænum apríl af heilum hug.
Umhverfismerkingar auðvelda þér að taka upplýstar ákvarðanir þegar þú verslar. Þú getur treyst því að viðkomandi vara og þjónusta standist ströngustu umhverfis- og heilsukröfur.
Stykkishólmur er grænjaxl
Stykkishólmur er grænjaxl og sýnir með góðri fyrirmynd í verki hvað sveitarfélögin geta gert, ekki einungis í grænum apríl.
Auður Capital er grænjaxl
Auður Capital er grænjaxl og hefur markað sér umhverfisstefnu. Í aprílmánuði munu starfsmenn Auðar nýta tímann til hins ítrasta til að festa stefnuna enn betur í sessi.
Kolors er grænjaxl
Kolors er netverslun og stefna þess er að bjóða upp á gott úrval af umverfisvænum tískuvörum. Kolors er grænjaxl og styður Grænan apríl af ráð og dáð.
Umhverfisstefna mennta- og menningarmalaráðuneytis
Mennta- og menningarmálaráðuneytið samþykkti umhverfisstefnu sína í september 2009. Ráðuneytið hefur löngum verið þekkt fyrir öfluga stefnu í lýðheilsumálum enda fer það með íþróttamál í landinu og segja má að umhverfisstefnan rími við hana.
Snæfellsbær er grænjaxl
Snæfellsbær er á utanverðu Snæfellsnesi. Snæfellsbær er hluti af fyrsta vottaða sveitarfélagi í Evrópu og er sannkallaður grænjaxl.
Ferðaþjónusta bænda er grænjaxl
Hafið þið tekið eftir græna burstabæjarmerki við þjóðveginn á ferð ykkar um landið eða kannist þið kannski við bæklinginn „Upp í sveit“? Þetta er vörumerki Ferðaþjónustu bænda og eru 160 staðir um allt land innan vébanda samtakanna. Ferðaþjónusta bænda er Grænjaxl og kynnir ykkur þjónustu sína í mánuðinum.
Salka er grænjaxl
Bókaútgáfan Salka var stofnuð vorið 2000 og frá upphafi hefur grænn lífsstíll og umhyggja fyrir umhverfinu skipað ríkan sess í markmiðum fyrirtækisins. Salka er því sannur grænjaxl og styður átaksverkefnið Grænan apríl af heilum hug.
Ó. Johnson & Kaaber er grænjaxl
Ó. Johnson & Kaaber er elsta heildsala landsins og hefur síðustu 105 árin séð íslenskum heimilum fyrir flestum helstu nauðsynjum. Ó. Johnson & Kaaber er grænjaxl og styður Grænan apríl.
Innanríkisráðuneytið er grænjaxl
Innanríkisráðuneytið er grænjaxl og styður Grænan apríl. Meðal málaflokka sem heyra undir Innanríkisráðuneytið eru samgöngumál. Í samgönguáætlun fyrir árin 2011-2020 vega samfélagsleg markmið þungt.
Kaffitár er grænjaxl
Fyrstu og einu veitinga/kaffihús landsins sem eru með Svansvottun eru 8 kaffihús Kaffitárs. Þau ásamt eldhúsi Kaffitárs fengu vottun 2010. Kaffitár er grænjaxl og vekur athygli þína á Grænum apríl. Kaffitár hefur um árabil flokkað allt rusl og úrgang en með Svansvottuninni var gengið enn lengra. Allt lífrænt efni úr eldhúsi Kaffitárs og kaffihúsum t.d. allur kaffikorgur fer í moltugerð.
Olís er grænjaxl
Olís hefur um árabil lagt ríka áherslu á stuðning við samfélagsmál og frá árinu 1992 hefur félagið unnið skipulega að umhverfis- og uppgræðslumálum, enda er það stefna fyrirtækisins að standa vörð um náttúru Íslands. Olís er grænjaxl og tekur virkan þátt í Grænum apríl.
World Class er grænjaxl
World Class tekur þátt í Grænum apríl. Græn stefna World Class felur meðal annars í sér að notuð eru handklæði á stöðvunum en ekki pappírsþurkur til að þurrka af tækjum. Á salernum eru handblásarar og fleira er gert til að hlífa umhverfinu í daglegum rekstri.
Elding er grænjaxl
Á síðastliðnum árum hefur mikið verið fjallað um sjálfbæra ferðamennsku, en hún felur í sér að mæta þörfum nútímans án þess að ganga á möguleika framtíðarinnar. Elding Hvalaskoðun hefur ákveðið að tileinka sér umhverfisstefnu í sínum rekstri til að geta stuðlað að sjálfbærri uppbyggingu til framtíðar. Elding vekur athygli á starfsemi sinni sem grænjaxl og samstarfsaðili með Grænum apríl.
Reykjavíkurborg er grænjaxl
Reykjavíkurborg er grænjaxl og fjölmargar aðgerðir og viðburðir eru á prjónunum, sem kynntir verða í apríl, þar sem græni kosturinn er valinn í starfi borgarinnar.
GuðjónÓ – vistvæn prentsmiðja í rúman áratug
Prentsmiðjan GuðónÓ er grænjaxl en prentsmiðjan fékk Svansvottun fyrst árið 2000 og þá fyrst íslenskra prentsmiðja. Fyrstu skrefin voru að taka á hreinisefnum og prentlitum, falla frá notkun á jarðolíuefnum og nýta liti unna úr jurtaefnum. Síðan var tekið á nýtingu pappírs og flokkunarferli.
Heilsa er grænjaxl
Heilsa er grænjaxl og tekur af heilum hug þátt í grænum apríl.
Bros er grænjaxl
Bros er fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og merkingum á fatnaði og auglýsingavöru. Bros er Grænjaxl og er með vottað, ISO 9001 gæðakerfi.
Umhverfisráðuneytið er grænjaxl
Við vitum ekki hvort Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra á eftir að hlaupa Grænan apríl í ár, en eitt er víst að hún mun ganga á grænum dregli og klippa á grænan borða á einhverjum skemmtilegum stað til að láta okkur öll vita af því að nú sé átakið formlega hafið. Meira um það síðar. Umhverfisráðuneytið er grænjaxl og tekur heilshugar þátt í Grænum apríl.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið er grænjaxl
Menna- og menningarmálaráðuneytið er grænjaxl og styður við bakið á Grænum apríl, meðal annars með kynningu á ýmsum verkefnum, sem eru á döfinni og tengjast skóla og fræðslustarfi.
Íslenska Gámafélagið er grænjaxl
Íslenska Gámafélagið er Grænjaxl og stuðningsaðili framtaksins Grænn apríl.








