Aprílskógar munu klæða landið

Aprílskógar í Skorradal

Grænn apríl hefur fengið til afnota heljarinnar spildu úr landi Fitja í Skorradal og þar munu gróa Aprílskógar. Fyrstu plöntunum er plantað nú í vor.

Tilboð á lífrænum súrdeigsbrauðum hjá Brauðhúsinu

Brauðhúsið Grímsbæ

Til að slá botninn í Grænan apríl er Brauðhúsið í Grímsbæ með tilboð á lífrænum súrdeigsbrauðum út mánuðinn. Fyrstir koma, fyrstir fá 2,5 kg. lífrænt speltmjöl frá Saltå + súrdeig og uppskrift einungis 1.000 kr.

Keppni um hollan og góðan eftirrétt

glo.is

Í tilefni af GRÆNUM APRÍL standa eigendur veitingarstaðarins Gló fyrir Hollustu-eftirréttasamkeppni. Þau hvetja fólk til útbúa holla, næringarríka og bragðgóða eftirrétti og nota til þess gott hráefni. Allir sem áhuga hafa geta tekið þátt í þessari samkeppni.

Umhverfisleikir og rathlaup í Grasagarðinum

rathlaup

Árlegum Degi umhverfisins verður fagnað í Grasagarðinum með fjörugum umhverfisleikjum fyrir alla fjölskylduna, laugardaginn 30. apríl frá kl. 11-14. Einnig verður öllum boðið að ganga eftir „ónáttúrulega stígnum“ en við hann er ýmislegt forvitnilegt að finna sem alla jafna á ekki heima í Grasagarðinum. Auk þess munu félagar í Rathlaupsfélaginu Heklu kynna rathlaup fyrir gestum og leiðbeina þeim um nýja rathlaupsbraut í Laugardal.

Vísindaveisla

visindavaka600

Fjör og fræðsla fyrir alla fjölskylduna á Vísindavöku, sem haldin er á Hótel Stykkishólmi, laugardaginn 30. apríl.

Kynnstu Ecover á tilboði

www.heilsa.is

Ecover eru umhverfsvænar hreinlætisvörur og í Grænum apríl gefast mörg tækifæri til að kynnast vörunum á góðum afslætti eða jafnvel vinna þær í Lukkuleik Ecover.

Viltu vinna tösku?

kolorstaska

Ef þú skráir þig í netklúbb Kolors fyrir 30. apríl gætir þú unnið umhverfisvæna og töff Coin Purse tösku að eigin vali.

20% afsláttur hjá Græna hlekknum

Græni Hlekkurinn

Netverslunin “Grænmeti í áskrift” bíður 20% afslátt af öllum ferskvörum; grænmeti, ávöxtum og kryddi fyrir alla þá sem hlaupa síðustu vikuna í Grænum Apríl.

Hjólað í vinnuna, skráning

Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Átakið Hjólað í vinnuna stendur í ár frá 4. til 24 maí. Skráning hefst 18. apríl og um að gera að drífa í skráningunni, sem allra fyrst.

Vorgleði Ferðaþjónustu bænda

vorgledi

Nú er vor í lofti hjá ferðaþjónustubændum og fjölbreytt vor- og páskadagskrá í boði um allt land, sem hentar bæði þeim sem vilja fara í dagsferðir upp í sveit og þeim sem vilja dvelja lengur í sveitinni.

Gönguferð í Valaból

hafnarfjordur-loft

Í tilefni af Grænum apríl bjóða Farfuglar öllum áhugasömum upp á gönguferð í Valaból í Hafnarfirði þann 28. apríl.

Skógarganga fyrir skógarunnendur

Rauðavatn, skógrækt

Reykjavíkurborg stendur fyrir skógargöngu, í tilefni af Grænum apríl, fyrir skógarunnendur fimmtudaginn 28. apríl kl. 18.30-20.00 við Rauðavatn.

Skógar- og fjölskylduganga Skógræktarfélags Kópavogs

kopav.skograekt

Skógræktarfélag Kópavogs stendur fyrir skógar- og fjölskyldugöngu fimmtudaginn 28. apríl, í samvinnu við umhverfissvið Kópavogsbæjar. Gangan er í tilefni af Grænum apríl, Degi umhverfisins þann 25. apríl og að Sameinuðu þjóðirnar hafa tileiknað skógum heimsins árið 2011.

Umhverfishugvekja, græn syndaaflausn

frikirkjan.is

Fríkirkjan við Tjörnina stendur að Umhverfihugvekju í samvinnu við Grænan apríl miðvikudaginn 27. apríl og hefst hún kl. 20:00. Þar munu landsþekktir listamenn eins og Ellen Kristjánsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Mónika Abendroth koma fram ásamt Fríkirkjukórnum.

Vorhreinsun í Reykjanesbæ

reykjanesbaer.is

26. aprlí hefst vorhreinsun í Reykjanesbæ. Íbúar eru hvattir til þess að taka þátt í sameiginlegu átaki við að hreinsa og fegra bæinn

Íbúafundur vegna umhverfisvottunar

stykkisholmur-hofn

Miðvikudaginn 27. apríl kl. 20. verður efnt til íbúafundar í Stykkishólmi um umhverfisvottun EarthCheck, sem Stykkishólmsbær hefur hlotð í samstarfi við hin sveitarfélögin á Snæfellsnesi.

Engin framtíð án heilbrigðrar plánetu!

hnottur-hond

Peter Head, sem er framkvæmdastjóri hjá Arup verkfræðistofunni í Bretlandi, ræðir um aukið hlutverk verkfræðinga í hönnun umhverfisvænna nýjunga. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við VFÍ og fer fram í Öskju, stofu 132, miðvikudaginn 27. apríl og hefst kl. 14:30.

Íslenska skógarauðlindin – skógur tækifæra

Ár skóga

Þann 28. apríl nk verður haldin tímamótaráðstefna um íslensku skógarauðlndina. Ráðstefnan fer fram á Radisson Blu, Hótel Sögu í Reykjavík og verður haldin bæði í Súlnasal og Yale. 2 málstofur verða eftir hádegi, en ráðstefnan stendur frá kl. 08 – 17.

VOR er komið

VOR páskalilja

VOR í boði náttúrunnar er árstíðabundið tímarit og kemur út nú í þriðja sinn þriðjudaginn 18. apríl. Sérstök áhersla er á umhverfismál og matjurtarækt í VOR blaðinu.

Útiæfing Boot Camp í tilefni af Grænum apríl

BootCamp útiæfing

Á laugardag gefst möguleiki á að fá virkilega útrás fyrir útihreyfiþörfina, því þá verður BootCamp með útiæfingu í tilefni af Grænum apríl.

Mini Expo Hveragerði 2011

Hveragerði

Það er hægt að bregða sér í Fitness fjör um páskana í Hveragerði.

Listamenn Leikskólanna

Njálsborg

Þau voru glöð og kát börnin á Njálsborg þegar þau tóku við fyrstu verðlaunum í listaverkasamkeppni leikskólanna í gær fyrir verk sitt SKÁK OG MÁT.

Viltu prófa metanbíl?

metanbill.is

Þann 14. apríl er opið hús í Vélamiðstöðinni – metanbill.is – frá klukkan 16-18 í tilefni af Grænum apríl.
Vélamiðstöðin er til húsa í Gufunesi 112, Reykjavík.

Opinn fundur um Vatnajökulsþjóðgarð og atvinnutækifæri

Vatnajökulsþjóðgarður

Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs og þjóðgarðsvörður á vestursvæði auglýsa opna svæðisfundi um þjóðgarðinn og atvinnutækifæri tengd honum.

Græn Reykjavík

Græna Reykjavík

Opinn fundur umhverfis- og samgönguráðs þriðjudaginn 12. apríl kl. 16-18 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur er hluti af dagskrá Reykjavíkurborgar í Grænum apríl.

Ecover umhverfissjóðurinn, sækið um.

heilsa.is

Umsóknarfrestur vegna Umhverfisstyrks Ecover og Heilsu er til 17. apríl. Styrkurinn verður afhentur í fyrsta sinn í lok græns apríl, þann 30.

Sparnaður orkar ekki tvímælis

Orka Reykjavík

Reykjavíkurborg tekur þátt í Evrópskum orkudögunum sem hafa það að markmiði að efla hagkvæma orkunýtingu og styðja nýtingu vistvænnar orku. Borgarbúar eiga góða möguleika á að spara orku á heimilum og í fyrirtækjum.

Gönguferðir um helgina

Hraun og mosi

Í tengslum við átakið GRÆNAN APRÍL er boðið upp á tvær skemmtilegar gönguferðir um helgina. Annars vegar er hægt að fara í gönguferð með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og hins vegar með Reyni Ingibjartssyni.

Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar

Hveragerði

Í dag verða afhent umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar.

Endurvinnsla og skógar í Sesseljuhúsi

sesseljuhus.is

Í Sesseljuhúsi stendur nú yfir sýningin Endurvinnsla og skógar.
Íbúar Sólheima söfnuðu öllum umbúðum sem til féllu á heimili þeirra í eina viku og var útbúið svokallað skógarherbergi úr ruslinu. Þetta var meðal annars gert til að vekja íbúa til umhugsunar um allt ruslið sem til fellur og hvernig hægt sé að takmarka það, einnig að sýna fram á að rusl getur líka verið auðlind.

Grænjaxlar leggja hvor öðrum lið

stykkisholmur.is

Í kvöld kl. 20 heldur Íslenska Gámafélagið kynningarfund um sorpflokkun í Stykkishólmi.

Kynningafundur Orkuveitunnar

or.is

Orkuveita Reykjavíkur stendur fyrir kynningarfundi um ýmislegt sem varðar fyrirtækið, græna þekkingu og þjónustu. Fundurinn er haldinn 12. apríl, kl. 09-10 í fyrirlestrasal Orkuveitunnar.

Búum komandi kynslóðum heilbrigt umhverfi

Hvalfjarðarsveit

Sunnudaginn 10. apríl verður haldin umhverfishátíð í Hvalfirði kl. 14-16 að Hlöðum, Hvalfjarðarsveit. Það er Umhverfisvaktin við Hvalfjörð sem stendur fyrir hátíðinni, sem ber yfirskriftina “Búum komandi kynslóðum heilbrigt umhverfi”.

Skák og mát á Njálsborg

Njálsborg

Börnin í Njálsborg eru í skákkennslu og er það skákmeistari sem sér um kennsluna. Það er hefð fyrir því að búa til listaverk fyrir sýningu á skákmóti sem haldið er í Ráðhúsi Reykjavíkur ár hvert

Barnabúðin er með vistvænan barnafatnað á tilboði

Eplatréið barnabúð

Í barnabúðinni Garðastræti 17 fagnar Eplatréið Grænum apríl með afsláttardögum frá 5. til 20. apríl. 15% kynningarafsláttur af barnafatnaði frá Aravore.

Sólblóm í skyrdós

Drafnarborg

Börn og starfsfólk á Leikskólanum Drafnarborg vinna að því fá Grænfánann og eru því mikið að hugsa um umhverfið og að endunýta hluti.

Lífræn ræktun í heimilisgörðum

eldhusgardurinn

Skaftárhreppur tekur þátt í Grænum apríl og býður upp á ýmsa viðburði í mánuðinum.
Föstudaginn 8. apríl nk. verður Jóhanna B. Magnúsdóttir með fyrirlestur um lífræna ræktun í heimilisgörðum. Fyrirlesturinn verður á Hótel Geirlandi og hefst kl. 20:30.

Glerlist í Laugaborg

Laugaborg

Laugaborg hefur hlotnast sú viðurkenning í umhverfismálum að fá Grænfánann afhentan nú á árinu. Fáninn verður afhentur á afmælisdegi Laugaborgar en leikskólinn á 45 ára afmæli þann 1. júní næstkomandi.

Sköpun augnabliksins

Sólhvörf, Kópavogi

Listaverkin breyttust meðan á vinnunni stóð. T.d. varð mjög fallegur garður að hræðilegu skrímsli í lokin. Þegar verkin voru tilbúin voru þau fest á mynd. Vinnan var samt ekki búin, nú þurfti að ganga frá öllu efninu aftur, flokka það í rétta kassa svo næsti hópur gæti líka notað það. Það verk var ekki síður skemmtilegt en myndsköpunin.

Þrjár spennandi ferðir í tilefni af grænum apríl

Íslenskir fjallaleiðsögumenn

Í tilefni Þátttöku Íslenskra Fjallaleiðsögumanna í Grænum apríl 2011 er boðið uppá þrjár mismunandi ferðir; Jöklagöngu frá Sólheimajökli með áherslu á fræðslu um bráðnun jökla, Gönguferð um Hengilssvæðið með hugsanlegu hverabaði ef veður leyfir og síðast en ekki síst fjallgöngu á Eyjafjallajökul.

Umhverfis- og öryggisstjórnun hjá HS Orku hf.

HS Orka

Faghópur um Umhverfis-og öryggismál Stjórnvísi kynnir Umhverfis-og öryggisstjórnun hjá HS Orku hf. Kynningin fer fram fimmtudaginn 7. apríl, kl. 8:15 til 9:45 í Reykjanesvirkjun. Boðið verður upp á vettvangsferð um virkjunarsvæði Reykjanesvirkjunar að kynningu lokinni.

Undralækur í undraheimi skriðdýranna

Laugaborg.is

Í febrúar fóru börnin á Undralæk (3-4 ára) á skriðdýrasýninguna í Húsdýragarðinum. Þau urðu alveg heilluð af froskunum, eðlunum, slöngunni, skjaldbökunum og öllu sem þau sáu og var mikið rætt um sýninguna og þessa ferð.

Grænir pistlar Hosilo um fatnað, skart og tísku

Hosilo.is

Hosiló er verslun sem selur notaðan fatnað og aðra aukahluti og býður það í eðli sínu upp á tækifæri til að leita sjálfbærri leiða í verslun og þjónustu. Umhverfisstefna er þó ekki leið sem tekur enda heldur endalaus vegur nýrra leiða og markmiða sem stefnir að grænni og hagkvæmari rekstri.

Íshestar taka þátt í grænum apríl

ishestar

Íshestar hafa ætíð lagt mikla áherslu á umhverfismál og taka heilshugar þátt í grænum apríl.

Umhverfis-Krókur

Heilsuleikskólinn Krókur

Heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík stendur fyrir umhverfisþema þann 4. apríl.

Ferðalög framtíðar: græn, blá eða grá?

Listahátíð í Reykjavík

Reykjavíkurborg stendur fyrir málstofu um umhverfisvæna ferðaþjónustu í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns, fimmtudaginn 7. apríl kl. 08:30-10:00.

Dokkan morgunfundur um vottunarferli N1

dokkan.is

Dokkan bíður öllu fag- og áhugafólki um gæðastjórnun og umhverfismál á glæsilegan morgunfund i tilefni þess að N1 fær vottun samkvæmt ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðli. Þjónustustöð og verkstæði N1 við Bíldshöfða 2, er fyrsta fjölorkustöðin á Íslandi sem fær staðfestingu á vottun samkvæmt 14001 umhverfisstjórnunarstaðlinum.

2 fyrir 1 í apríl hjá Maður lifandi

madurlifandi.is

Maður lifandi býður 2 fyrir 1 af rétti dagsins alla virka daga í apríl, eftir kl. 16 í tilefni af Grænum apríl.

Skógarleiðangur í Laugardal

Grasagarðurinn í Laugadal, Reykjavík

Hvar finnum við tré? Hvað heyrist í þeim? Hvernig lykt er af þeim? Hvers vegna stækka þau? Hvað verða þau eiginlega gömul? Í könnunarleiðangri um garðinn munu börn og kennarar finna svör við þessum spurningum og fjölmörgum fleiri. Skógarleiðangrar eru farnir í Laugardal dagana 4.-8. apríl kl. 9.15-11.15 


Vorfuglar glaðir

Leikskólinn Kópanes

Fuglar, fuglalíf, mjólkurfernur og endurnýting eiga góða samleið með vorinu.

Lítil skyrdós öðlast nýtt líf

Leikskólinn Klambrar

Einu sinni kom eitt barnanna á Klömbrum með nokkrar tómar skyrdósir og Cheerios pakka í leikskólann. Í kjölfarið hófst mikil umræða og hugmyndavinna meðal barnanna og kennara hvað væri hægt að nota þennan efnivið í.

Stútfull askja af kærleik

Leikskólinn Álfaheiði

Leikskólinn Álfaheiði í Kópavogi vinnur með námsefnið Lífsmennt sem byggir á 12 jákvæðum lífsgildum. Lífsgildin leggja áherslu á virðingu og reisn allra manna, samfélagsins og virðingu gagnvart jörðinni okkar.

Veröldin í nýju ljósi á Mýri

Leikskólinn Mýri

Leikskólinn Mýri tekur þátt í Listaverkasamkeppni Leikskólanna. Leikskólinn Mýri er á Grænni grein og vonast þau til að öðlast grænfánann í sumar. 

Leikskólinn Fífuborg ætlar að vera á grænni grein

Fífuborg, Hulduheimar

Leikskólinn Fífuborg er að vinna að því að vera á grænni grein og er komin á fullt í endurvinnslu.

Listaverk leikskólans á Bergi

Ruslahjón frá Bergi á Kjalarnesi

Á leikskólanum Bergi á Kjalarnesi hafa börnin skapað stórmerkileg listaverk úr verðlausu efni, sem meðal annars hefur fallið til frá eldabuskunni, eins og þau segja sjálf.

Blómvöndur Blásala

Leikskólinn Blásalir

Páskaliljurnar blómstra nú þegar hjá leikskólabörnum í Blásölum.

Dísir boutique taka þátt í Grænum apríl

disir.is

Dísir boutique er ný vefverslun í eigu Allt fyrir augað ehf. Verslunin er einungis með starfsemi á netinu og selur meðal annars endurnýtanlegu töskurnar/ pokana frá Envirosax. Eitt af gildum fyrirtækisins eru umhverfismál.

Verðlaust efni verður að listaverkum

Bakki - grænfáni

Leikskólinn Bakki hefur sent inn tvær myndir í Listaverkasamkeppni Leikskólanna á Grænum apríl. Leikskólinn Bakki er með grænfánann og því flokkast allur úrgangur.

Prentmet sækist eftir Svaninum

prentmet.is

Prentmet er í hópi þeirra íslensku fyrirtækja, sem vinnur að því að verða sem umhverfisvænast.
Þann 31. mars, koma fulltrúar frá Umhverfisstofnun og taka fyrirtækið út með það fyrir augum að Prentmet komist í hóp þeirra fyrirtækja, sem geta skartað Svansmerkinu á afurðum sínum.

MANNA – annars konar sýning um mat

Býfluga í blómi

Sýningin opnar í Norræna húsinu þann 19. mars og stendur til 1. maí. Sérstaklega er höfðað til eldri bekkja grunnskóla og líffræðinemenda í framhaldsskólum, en sýningin er einnig spennandi fyrir alla aðra sem hafa áhuga fyrir skemmtilegri og fræðandi framsetningu á því hvaðan maturinn okkar kemur og hvað þarf til að framleiða hann.

Viðburðir – Grænn apríl

Grænt Ísland

Viðburðadagatalið mun halda utan um alla viðburði, sem á dagskrá verða í apríl og tengjast Grænum apríl. Rík áhersla verður lögð á samstarf við fjölmiðla og að kynna og flytja fréttir af þeim verkefnum og viðburðum sem eru á dagskrá í Grænum apríl. Vertu með!