Grænir vængir
Stundum er styttra í lausnirnar en við reiknum með. Útblástur frá flugflota heimsins hefur verið mikill höfuðverkur og margir varla reiknað með að geta í náinni framtíð flogið á milli landshluta, hvað þá yfir úthöfin á lífrænu eldsneyti.
Grænt Google
Hjá Google er fólk fyrir löngu búið að finna út úr því að það er bæði hipp, kúl og hagkvæmt að huga að umhverfisþáttum í rekstrinum. Að velja græna kostinn sýnir sig í jákvæðum tölum á hinum elskuðu efnahagsreikningum og fyrir fyrirtæki, sem vinnur sig inn í framtíðina, er jú eins gott að það sé einhver framtíð að horfa til.
Kínverjar með áhyggjur af umhverfi og loftslagi
Í grein eftir Andrew Jacobs, sem birt var nýlega í New York Times, fjallar hann um óvanalega og blákalda viðvörun frá umhverfisráðherra Kína um afleiðingar þess taumlausa efnahagsvaxtar sem verið hefur á andrúmsloft landsins, vatn og jarðveg. Þar sagði meðal annars að ef haldið væri áfram á núverandi braut myndi það geta heft langtíma efnahagsþróun og leitt til óstöðugleika í samfélaginu.
Útópíuframtíð á Haiti
Vincent Callebaut hefur kynnt nýstárlegar tillögur að enduruppbyggingu á Haiti, þar sem umhverfi og sjálfbærni eru útganspunktur.
YouSendIt og umhverfið
Með því að nota YouSendIt hafa fyrirtæki komið í veg fyrir losun á 409.324 tonnum af koltvísýringi á síðasta ári og sóun á rúmlega 10 milljón lítrum af vatni.
Græðandi spor
Hollenska fyrirtækið OAT, með hönnuðinn Christiaan Maats, í broddi fylkingar, kynnti á tískuvikunni í Amsterdam í síðustu viku, skó sem má telja með þeim umhverfisvænni.
Ítalir banna plastpoka
Bann við notkun einnota plastpoka tók gildi á Ítalíu nú um áramót. Ítalir nota að meðaltali 20 milljarða einnota plastpoka á ári hverju og meðalítalinn notar – og hendir – 400 plastpokum á ári.








