Íslenska skógarauðlindin – skógur tækifæra

Ár skóga

Þann 28. apríl nk verður haldin tímamótaráðstefna um íslensku skógarauðlndina. Ráðstefnan fer fram á Radisson Blu, Hótel Sögu í Reykjavík og verður haldin bæði í Súlnasal og Yale. 2 málstofur verða eftir hádegi, en ráðstefnan stendur frá kl. 08 – 17.

Endurvinnsla og skógar í Sesseljuhúsi

sesseljuhus.is

Í Sesseljuhúsi stendur nú yfir sýningin Endurvinnsla og skógar.
Íbúar Sólheima söfnuðu öllum umbúðum sem til féllu á heimili þeirra í eina viku og var útbúið svokallað skógarherbergi úr ruslinu. Þetta var meðal annars gert til að vekja íbúa til umhugsunar um allt ruslið sem til fellur og hvernig hægt sé að takmarka það, einnig að sýna fram á að rusl getur líka verið auðlind.

Kynningafundur Orkuveitunnar

or.is

Orkuveita Reykjavíkur stendur fyrir kynningarfundi um ýmislegt sem varðar fyrirtækið, græna þekkingu og þjónustu. Fundurinn er haldinn 12. apríl, kl. 09-10 í fyrirlestrasal Orkuveitunnar.

Búum komandi kynslóðum heilbrigt umhverfi

Hvalfjarðarsveit

Sunnudaginn 10. apríl verður haldin umhverfishátíð í Hvalfirði kl. 14-16 að Hlöðum, Hvalfjarðarsveit. Það er Umhverfisvaktin við Hvalfjörð sem stendur fyrir hátíðinni, sem ber yfirskriftina “Búum komandi kynslóðum heilbrigt umhverfi”.

Barnabúðin er með vistvænan barnafatnað á tilboði

Eplatréið barnabúð

Í barnabúðinni Garðastræti 17 fagnar Eplatréið Grænum apríl með afsláttardögum frá 5. til 20. apríl. 15% kynningarafsláttur af barnafatnaði frá Aravore.

Lífræn ræktun í heimilisgörðum

eldhusgardurinn

Skaftárhreppur tekur þátt í Grænum apríl og býður upp á ýmsa viðburði í mánuðinum.
Föstudaginn 8. apríl nk. verður Jóhanna B. Magnúsdóttir með fyrirlestur um lífræna ræktun í heimilisgörðum. Fyrirlesturinn verður á Hótel Geirlandi og hefst kl. 20:30.

Þrjár spennandi ferðir í tilefni af grænum apríl

Íslenskir fjallaleiðsögumenn

Í tilefni Þátttöku Íslenskra Fjallaleiðsögumanna í Grænum apríl 2011 er boðið uppá þrjár mismunandi ferðir; Jöklagöngu frá Sólheimajökli með áherslu á fræðslu um bráðnun jökla, Gönguferð um Hengilssvæðið með hugsanlegu hverabaði ef veður leyfir og síðast en ekki síst fjallgöngu á Eyjafjallajökul.

Íshestar taka þátt í grænum apríl

ishestar

Íshestar hafa ætíð lagt mikla áherslu á umhverfismál og taka heilshugar þátt í grænum apríl.

Dokkan morgunfundur um vottunarferli N1

dokkan.is

Dokkan bíður öllu fag- og áhugafólki um gæðastjórnun og umhverfismál á glæsilegan morgunfund i tilefni þess að N1 fær vottun samkvæmt ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðli. Þjónustustöð og verkstæði N1 við Bíldshöfða 2, er fyrsta fjölorkustöðin á Íslandi sem fær staðfestingu á vottun samkvæmt 14001 umhverfisstjórnunarstaðlinum.