Þekkir þú merkin?

Margir tengja umhverfismerkin fyrst og fremst við hreinlætisvörur á vökvaformi. Það eru hins vegar fjölmargar aðrar vörutegundir, sem eru umhverfismerktar.

Servida Besta hafa stigið græna skrefið

Miklu máli skiptir hvers konar vörur eru notaðar við þrifin. Umhverfisvænar vörur draga úr óæskilegum áhrifum á umhverfi og heilsu og eru því bæði betri og öruggari kostur. Servida og Besta leggur áherslu á að bjóða uppá umhverfisvænar vörur, sem bera vottun á borð við Svaninn, Green Seal, evrópska blómið, sænsku svöluna og bláa engilinn.