Andrúmsloftið er jafn þunnt og laukhýði
Andrúmsloft jarðar er þynnra en við kannski veltum fyrir okkur dags daglega. Svona álíka þykkt og leiðin frá miðbæ Reykjavíkur uppí Mosfellsbæ.
Bílabúð Benna er grænjaxl
Bílabúð Benna er stoltur grænjaxl og styður Grænan apríl. Fyrirtækið er rótgróið, stofnað árið 1975 og hélt því upp á 35 ára afmæli sitt í fyrra, árið 2010. Bílabúð Benna er umboðsaðili bílaframleiðendanna Porsche, Chevrolet og SsangYong auk þess að vera með umboð fyrir hjólbarða frá Toyo Tires og BFGoodrich sem og fjölda umboða fyrir aukahluti í bifreiðar.
Nings er grænjaxl
Þegar rýnt er á bak við framhliðina hjá Nings kemur í ljós að eigendum hefur alltaf verið umhugað um umhverfismál, því þau fara vel saman við heilsu og hollt mataræði.
Innanríkisráðuneytið er grænjaxl
Innanríkisráðuneytið er grænjaxl og styður Grænan apríl. Meðal málaflokka sem heyra undir Innanríkisráðuneytið eru samgöngumál. Í samgönguáætlun fyrir árin 2011-2020 vega samfélagsleg markmið þungt.








