Vistvænar byggingar og fleira áhugavert í Dokkunni
Dokkan stendur fyrir málþingi um vistvænar byggingar, samgöngur og umhverfisstaðla þriðjudag 17. apríl.
Málþingið fer fram á Háskólatorgi H.Í. í stofu 101 og stendur frá kl. 08:30-11:30
GRÆNIR HÆLAR í samvinnu við EarthCheck
Stutt er síðan GRÆNIR HÆLAR tóku að sér að vera umboðsaðilar EarthCheck á Íslandi, en eigandi fyrirtækisins Guðrún Bergmann hefur þó verið tengd þessu umhverfisvottunarmerki allt frá árinu 1999, meðan það enn hét Green Globe.
Hótel Hellnar, platinum
Hótel Hellnar gekk til liðs við umhverfisvottunarsamtökin Green Globe árið 2000 og hlaut vottun frá þeim árið 2002, en nafni Green Globe var fyrir nokkru breytt í EarthCheck. Hótelið er tekið úr árlega og við úttekt á árinu 2012 er gert ráð fyrir að það hljóti Platinum vottun frá EarthCheck, fyrst allra hótela í Evrópu, en það hljóta þau fyrirtæki sem hafa verið vottuð í 10 ár.
Hvað er EarthCheck?
Grænir Hælar eru umboðsaðili Earth Check á Íslandi. EarthCheck eru viðurkennd vottunarsamtök með öfluga ástralska háskóla sem bakhjarla. Þau eru einu samtökin sem fram til þessa hafa umhverfisvottað starfsemi sveitarfélaga en þau votta einnig starfsemi fyrirtækja. Samtökin byggja á hugmyndafræði Staðardagskrár 21 um ábyrga stjórnun og sjálfbæra þróun.
Íbúafundur vegna umhverfisvottunar
Miðvikudaginn 27. apríl kl. 20. verður efnt til íbúafundar í Stykkishólmi um umhverfisvottun EarthCheck, sem Stykkishólmsbær hefur hlotð í samstarfi við hin sveitarfélögin á Snæfellsnesi.
Íbúarnir gera kröfur
Snæfellsnes er fyrsta landsvæðið í Evrópu sem fær umhverfisvottun Green Globe-samtakanna og það fjórða í heiminum. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ segir undirbúningsferlið hafi krafist mikillar vinnu, enda sveitarfélögunum settar strangar kröfur til að fá slíka alþjóðlega vottun.
Maður og náttúra eru eitt!
“Verkefnið okkar er að vera áfram frumkvöðull í umhverfismálum. Við erum að nýta náttúruna, en á meðvitaðan hátt. Maður og náttúra eru eitt!” Þetta segir forseti bæjarstjórnar í Grundarfirði, Sigurborg Kr. Hannesdóttir.
EarthCheck og umhverfisstarf í Grundarfirði
Grundarfjarðarbær er þátttakandi í verkefninu Grænn apríl og er hreinræktaður grænjaxl, vegna þess að hvert einasta skref í átt að betri umgengni um umhverfið skiptir máli. Það er á ábyrgð okkar allra að gera það sem í okkar valdi stendur. Því við höfum aðeins eina jörð og hana höfum við að láni frá afkomendum okkar.
Stykkishólmur er grænjaxl
Stykkishólmur er grænjaxl og sýnir með góðri fyrirmynd í verki hvað sveitarfélögin geta gert, ekki einungis í grænum apríl.
Snæfellsbær er grænjaxl
Snæfellsbær er á utanverðu Snæfellsnesi. Snæfellsbær er hluti af fyrsta vottaða sveitarfélagi í Evrópu og er sannkallaður grænjaxl.








