Hvað verður um ruslið okkar?
SORPA hefur séð um ruslið okkar í meira en tvo áratugi. Markmiðið er að auka endurvinnslu og endurnotkun. Endurvinnslustöðvarnar taka við úrgangi, þar sem hægt er að flokka í allt að 25 flokka og skila inn flöskum og dósum og fá pening fyrir. En það eru ekki bara skilagjöld til einstaklinga sem eru fjármunir þegar ruslið okkar er annars vegar.
Málið leyst
Pappír er líka verðmæti þegar hann hefur lokið sínu hlutverki. Ólafur Þ. Stephensen er ritstjóri Fréttablaðsins og upplýsir hér hvernig hann leysir pappírsmálin í sínum húsum.
Endurvinnsluþorp Íslenska Gámafélagsins
Hugmynd Íslenska Gámafélagsins um Endurvinnsluþorp á svæði gömlu áburðarverksmiðjunnar á vaxandi gengi að fagna. Þar er nú að finna fjölmörg fyrirtæki, sem vinna gjaldeyri úr rusli – og enn er hægt að fjölga fyrirtækjum í þorpinu.
Actavis er grænjaxl
Sem dæmi um markmiðasetningu og góðan árangur í umhverfismálum hjá Actavis, þá er sorp sem fellur til
við reksturinn endurunnið eða endurnýtt. Á árinu 2006 fóru einungis 26% sorps í endurvinnslu eða endurnýtingu, í lok ársins 2010 var hlutfallið komið í 85% og er enn að aukast.
Fatasöfnun Rauða kross Íslands er grænjaxl
Deildir Rauða krossins um allt land safna notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Þetta er ekki enungis frábær endurvinnsla heldur leggur fólk Rauða krossinum lið með því að gefa fatnað og styrkir neyðaraðstoð bæði hér á landi og erlendis. Fatasöfnunin er grænjaxl og tekur heilshugar þátt í Grænum apríl.
Endurvinnsla og skógar í Sesseljuhúsi
Í Sesseljuhúsi stendur nú yfir sýningin Endurvinnsla og skógar.
Íbúar Sólheima söfnuðu öllum umbúðum sem til féllu á heimili þeirra í eina viku og var útbúið svokallað skógarherbergi úr ruslinu. Þetta var meðal annars gert til að vekja íbúa til umhugsunar um allt ruslið sem til fellur og hvernig hægt sé að takmarka það, einnig að sýna fram á að rusl getur líka verið auðlind.
Svanurinn auðveldar þér valið
Svanurinn og Umhverfisstofnun eru grænjaxlar og taka þátt í Grænum apríl af heilum hug.
Umhverfismerkingar auðvelda þér að taka upplýstar ákvarðanir þegar þú verslar. Þú getur treyst því að viðkomandi vara og þjónusta standist ströngustu umhverfis- og heilsukröfur.
Forskot Háteigsskóla á Grænan apríl
Hópur frá Háteigsskóla tók smá forskot á Grænan apríl í skólanum í dag. Hópurinn heimsótti vistvænu prentsmiðjuna GuðjónÓ og kynnti sér pappír og endurvinnslu á pappír.
Leikskólinn Fífuborg ætlar að vera á grænni grein
Leikskólinn Fífuborg er að vinna að því að vera á grænni grein og er komin á fullt í endurvinnslu.
Agnes sparar með metanbílnum
Agnes Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs hjá Íslenska Gámafélaginu
Vissir þú að…
Það er skemmtileg dægrastytting að rýna í tölfræði, sem tengist lífsháttum okkar og umhverfi. Hér eru nokkrar blákaldar staðreyndir.








