SORPA sorterar

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu

Markmið SORPU snýst um aukna endurvinnslu og endurnotkun. Frá fyrsta starfsdegi breytt Efnamóttakan miklu í rétta átt og bæði Metan og Góði hirðirinn hafa gengið glimrandi vel. Góði hirðirinn er rekinn í samvinnu við líknarfélögin og er óhætt að segja að Góði hirðirinn hafi leyst þörf, sem var fyrir hendi – að koma góðum hlutum áfram til nýrra eiganda. Góði hirðirinn var nýverið tilnefndur til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins.