Hvar viltu vera?
Tryggur viðskiptavinur
Kía Ríó – viku síðar
Vala Matt raðprófar Kia bíla í Grænum apríl. Hún hefur ekið allra sparneytnasta bílnum, Kía Ríó í viku. Ríóinn eyðir að jafnaði 3,2 lítrum í blönduðum akstri og fær frítt í bílastæði í Reykjavík 90 mín. í senn. Vala hefur ekið bílnum í bæjarumferðinni, en líka farið út á land – og ekki tekið eldsneyti [...]
1. apríl í Kringlunni
Grænn apríl 2012 hófst í Kringlunni sunnudaginn 1. apríl. Gestir Kringlunnar kynntu sér í gleði og ákafa græna vöru, þekkingu og þjónustu, sem þátttakendur í Grænum apríl bjóða uppá, en nokkrir þeirra voru einnig á staðnum. Íslenska Gámafélagið veitti Kringlunni viðurkenningu fyrir framsýnt umhverfisstarf og Guðrún G. Bergmann, setti átakið. Taktu þátt í grænu umræðunni [...]
Græn bílalán Ergo
Brynjólfur Snorrason, ráðgjafi hjá Ergo leiðir okkur í allan sannleik um græn bílalán Ergo, bæði til nýrra og eldri bíla.
Ergo, sem er fjármögnunardeild Íslandsbanka, er stolt að hafa verið fyrst til að kynna græn bílalán á íslenskum markaði. Grænu bílalánin hafa hlotið frábærar viðtökur og margir nýtt sér þau.
Ergo í grænu umhverfi
Ásthildur Kristjánsdóttir, forstöðumaður Ergo, segir frá því að við nafnabreytingu í Ergo sumarið 2011 var ekki bara lögð áhersla á græna stefnu í bílafjármögnun heldur einnig grænar áherslur hjá félaginu sjálfu. Var það haft að leiðarljósi við flutning starfseminnar á Suðurlandsbraut 14 og í vöruþróun félagsins.








