GRÆNIR HÆLAR í samvinnu við EarthCheck

Guðrún G. Bergmann, Grænir hælar

Stutt er síðan GRÆNIR HÆLAR tóku að sér að vera umboðsaðilar EarthCheck á Íslandi, en eigandi fyrirtækisins Guðrún Bergmann hefur þó verið tengd þessu umhverfisvottunarmerki allt frá árinu 1999, meðan það enn hét Green Globe.

Farfuglaheimilið í Laugardal opnar Grænt hringborð

Græna Hringborð Farfugla í Laugardal

Upplýsingarveita um græna kosti í ferðamennsku opnaði í dag á Farfuglaheimilinu í
Laugardal. Að Græna hringborðinu standa Farfuglaheimilið í samstarfi við verkefnið
Lifandi vegvísa á Höfuðborgarstofu, en þar geta ferðamenn og heimafólk fengið
upplýsingar um græna vöru og þjónustu alla daga í sumar.

Vorgleði Ferðaþjónustu bænda

vorgledi

Nú er vor í lofti hjá ferðaþjónustubændum og fjölbreytt vor- og páskadagskrá í boði um allt land, sem hentar bæði þeim sem vilja fara í dagsferðir upp í sveit og þeim sem vilja dvelja lengur í sveitinni.

Vottunarkerfin eru vinnutæki Eldingar

Eva María Þórarinsdóttir Lange, Elding

Elding Hvalaskoðun Reykjavík sérhæfir sig í afþreyingu á sjó. Eva María Þórarinsdóttir Lange, markaðsstjóri, segir okkur frá umhverfismarkmiðum Eldingar.

Við þekkjum nærumhverfið

Berglind Viktorsdóttir

Hjá Ferðaþjónustu bænda höfum við fylgt umhverfisstefnu í mörg ár. Sagan og menningin eru gullmolar. Við höfum áhrif á umhverfið og þurfum að draga úr umhverfisáhrifum, flokka, kaupa umhverfisvæn efni og vörur. Draga fram það góða og fallega í umhverfinu okkar. Okkar félagar gera það.

Djúpivogur, vinalegur og vistvænn er grænjaxl

djupivogur.is

Djúpavogshreppur er syðsta sveitarfélagið í Suður-Múlasýslu. Djúpavogshreppur er grænjaxl og tekur þátt í Grænum apríl af fullum krafti. Djúpavogshreppur er rómaður af náttúrufegurð, sem einkennist af ægifögrum fjörðum, skógiklæddum dölum, stórkrýti, klettaborgum og strýtum. Yfir þessu tróna tignarlegir fjallgarðar sem teygja sig upp úr vogskorinni strandlínu.

Stykkishólmur er grænjaxl

stykkisholmur.is

Stykkishólmur er grænjaxl og sýnir með góðri fyrirmynd í verki hvað sveitarfélögin geta gert, ekki einungis í grænum apríl.

Íshestar taka þátt í grænum apríl

ishestar

Íshestar hafa ætíð lagt mikla áherslu á umhverfismál og taka heilshugar þátt í grænum apríl.

Ferðalög framtíðar: græn, blá eða grá?

Listahátíð í Reykjavík

Reykjavíkurborg stendur fyrir málstofu um umhverfisvæna ferðaþjónustu í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns, fimmtudaginn 7. apríl kl. 08:30-10:00.

Ferðaþjónusta bænda er grænjaxl

www.sveit.is

Hafið þið tekið eftir græna burstabæjarmerki við þjóðveginn á ferð ykkar um landið eða kannist þið kannski við bæklinginn „Upp í sveit“?  Þetta er vörumerki Ferðaþjónustu bænda og eru 160 staðir um allt land innan vébanda samtakanna.  Ferðaþjónusta bænda er Grænjaxl og kynnir ykkur þjónustu sína í mánuðinum.