Djúpivogur, vinalegur og vistvænn er grænjaxl

djupivogur.is

Djúpavogshreppur er syðsta sveitarfélagið í Suður-Múlasýslu. Djúpavogshreppur er grænjaxl og tekur þátt í Grænum apríl af fullum krafti. Djúpavogshreppur er rómaður af náttúrufegurð, sem einkennist af ægifögrum fjörðum, skógiklæddum dölum, stórkrýti, klettaborgum og strýtum. Yfir þessu tróna tignarlegir fjallgarðar sem teygja sig upp úr vogskorinni strandlínu.