Páll Óskar og plastið

Páli Óskari dytti aldrei, aldrei í hug að henda einhverju þar sem hann stendur, eins og svo margir virðast stunda umhugsunarlaust. Páll Óskar hugsar áður en hann flokkar.

Páll Óskar og pappírinn

Páll Óskar er annálað snyrtimenni hvert sem litið er. Hann kynntist fyrst flokkun á ferð sinni til New York árið 1993, þegar hann sá flokkunartunnur á almannafæri í fyrsta sinn.

Vísað á sóffan

Tobba Marinós hefur upplifað að vera vísað á sóffan vegna vitlausrar flokkunar. Toppið það!

Málið leyst

Pappír er líka verðmæti þegar hann hefur lokið sínu hlutverki. Ólafur Þ. Stephensen er ritstjóri Fréttablaðsins og upplýsir hér hvernig hann leysir pappírsmálin í sínum húsum.

Vistvæn íbúð í IKEA

IKEA hefur í tilefni af Grænum apríl innréttað sérstaklega einstaklingsíbúð með vistvænum lausnum á einum stað og ábendingum um umhverfisvænni hversdag.

Grand Hótel Reykjavík er Svansvottað hótel

Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins og hlaut á dögunum umhverfismerki Svansins.
Á Grand Hóteli Reykjavík er lögð áhersla á persónulega og vinalega þjónustu og hótelið er afar fjölskylduvænt.

500 þúsund í skilagjöld

Á rúmum tveimur árum hafa íbúar húsanna á Völdunarreit skilað flöskum og dósum fyrir ríflega hálfa milljón. Og nú bætast meira en 200 þúsund í pottinn. Peningarnir fara beint í að fegra og bæta umhverfi íbúanna.

Flokkun er ekki flókin

hrund-still600

Flokkun vefst fyrir sumum, en Hrund Ólöf Andradóttir, dósent í umhverfisverkfræði við Verkfræði og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands útskýrir á einfaldan hátt hvernig flokkun á úrgangi fer fram á sviðinu

SORPA sorterar

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu

Markmið SORPU snýst um aukna endurvinnslu og endurnotkun. Frá fyrsta starfsdegi breytt Efnamóttakan miklu í rétta átt og bæði Metan og Góði hirðirinn hafa gengið glimrandi vel. Góði hirðirinn er rekinn í samvinnu við líknarfélögin og er óhætt að segja að Góði hirðirinn hafi leyst þörf, sem var fyrir hendi – að koma góðum hlutum áfram til nýrra eiganda. Góði hirðirinn var nýverið tilnefndur til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins.

Dýrmætur efniviður

Hvalfjörður

Hvalfjarðarsveit markaði þá stefnu á haustmánuðum 2010 að flokka sorp. Í nóvember var byrjað á svo nefndu þriggja tunnu kerfi þannig að núna er allt lífrænt sorp flokkað frá, flokkað í endurvinnslutunnu og svo fer í þriðju tunnuna það sem ekki er hægt að vinna og er urðað. Hvalfjarðarsveit sparar urðunarkostnað í Fíflholtum. Með aukinni flokkun er stefnt að lækkun á urðunarkostnaði en að auki að ná frá þeim markmiðum sem okkur eru sett varðandi urðun til framtíðar.

SORPA er grænjaxl

Sorpa 20 ára merki

SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garðabær og Álftanes. SORPA fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og er sannkallaður grænjaxl

Grænjaxlar leggja hvor öðrum lið

stykkisholmur.is

Í kvöld kl. 20 heldur Íslenska Gámafélagið kynningarfund um sorpflokkun í Stykkishólmi.

Kaffitár sparaði 40% í urðunarkostnað

kaffitar.is - Aðalheiður Héðinsdóttir

Sumir halda að það að vera umhverfisvænn sé bæði dýrt og óþægilegt. Kaffitár hefur allt aðra sögu að segja. Þar spöruðust 40% í urðunarkostnaði við flokkun og starfsfólkið fylltist stolti yfir því að vinna hjá umhverfisvænu og Svansvottuðu fyrirtæki.

Kópavogsbær er grænjaxl

kopavogur.is

Kópavogsbær er Grænjaxl. Kópavogsbær hefur unnið ötullega að umhverfismálum undanfarna áratugi en sést það einkum á fallegum opnum svæðum og frágangi og umhverfi íbúðarsvæða. Síðustu misseri hefur verið unnið að því að gera metnaðarfulla stefnu varðandi ýmsa þætti í umhverfismálum með það í forgrunni að bæta lífsgæði íbúa og vernda náttúru- og menningarminjar.

Komum okkur upp úr ruslatunnunni!

Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri

Gyða Steinsdóttir er bæjarstjóri í Stykkishólmsbæ. Stykkishólmsbær er grænjaxl og þar eru dregnir að húni bæði grænir og bláir fánar.

Kaffitár er grænjaxl

kaffitar.is

Fyrstu og einu veitinga/kaffihús landsins sem eru með Svansvottun eru 8 kaffihús Kaffitárs. Þau ásamt eldhúsi Kaffitárs fengu vottun 2010. Kaffitár er grænjaxl og vekur athygli þína á Grænum apríl. Kaffitár hefur um árabil flokkað allt rusl og úrgang en með Svansvottuninni var gengið enn lengra. Allt lífrænt efni úr eldhúsi Kaffitárs og kaffihúsum t.d. allur kaffikorgur fer í moltugerð.