Hvar viltu vera?

0

Tryggur viðskiptavinur

Grænn apríl í Sölku

Salka

Bókaútgáfan Salka leggur áherslu á bækur sem stuðla að heilbrigði og bættri umgengni við náttúruna og er þáttakandi í átakinu GRÆNN APRÍL.

Grænn lífsstíll – ekki flókið

konurgetabreyttheiminum

Mörgum vex í augum að taka upp græna lífshætti og hafa á tilfinningunni að það feli í sér gagngeran umsnúning á öllu þeirra lífi. Vissulega eru margir sem kjósa að breyta lífi sínu með afgerandi hætti og taka alfarið upp græna og vistvæna stefnu. Hins vegar er afar mikilvægt að hafa í huga að ekki er nauðsynlegt að taka slíkum stakkaskiptum. Gamla máltakið margt smátt gerir eitt stórt á einkar vel við þegar kemur að umhverfisvænni hugsunarhætti og lífsstíl.

Salka er grænjaxl

www.salka.is

Bókaútgáfan Salka var stofnuð vorið 2000 og frá upphafi hefur grænn lífsstíll og umhyggja fyrir umhverfinu skipað ríkan sess í markmiðum fyrirtækisins. Salka er því sannur grænjaxl og styður átaksverkefnið Grænan apríl af heilum hug.