Grænn starfsframi
Skortur á sérmenntuðu fólki í umhverfisfræðum veldur mikilli eftirspurn. Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands menntar fólk til framtíðar í þeim fræðum.
Sjálfbært skipulag – Dæmi Háskólasvæðið
Kreppan þrýstir á um sjálfbærnihugsun því fólk hefur minni tekjur og bensínverð hefur hækkað. Margir veigra sig því við löngum akstursleiðum, t.d. frá úthverfunum, og vilja frekar búa miðlægt. Til að geta dregið úr akstri og mætt óskinni um að búa miðlægt þarf að stefna að skipulagi sem eykur þéttleika í eldri hluta Reykjavíkur og leyfa meiri blöndun , t.d. með byggingu íbúðarhúsnæðis nálægt stórum vinnustöðum, eins og t.d. á Háskólasvæðinu. Þetta mundi minnka bílaumferð á Hringbraut og innan svæðins, fækka bílastæðum og spara fólki tíma.
Færri bílar í umferð?
Ein gatnamót í Reykjavík taka yfir megið af miðbænum þegar grannt er skoðað. Ættu kannski færri bílar að vera í umferðinni?
Andrúmsloftið er jafn þunnt og laukhýði
Andrúmsloft jarðar er þynnra en við kannski veltum fyrir okkur dags daglega. Svona álíka þykkt og leiðin frá miðbæ Reykjavíkur uppí Mosfellsbæ.
Flokkun er ekki flókin
Flokkun vefst fyrir sumum, en Hrund Ólöf Andradóttir, dósent í umhverfisverkfræði við Verkfræði og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands útskýrir á einfaldan hátt hvernig flokkun á úrgangi fer fram á sviðinu
Vísindaveisla
Fjör og fræðsla fyrir alla fjölskylduna á Vísindavöku, sem haldin er á Hótel Stykkishólmi, laugardaginn 30. apríl.
Engin framtíð án heilbrigðrar plánetu!
Peter Head, sem er framkvæmdastjóri hjá Arup verkfræðistofunni í Bretlandi, ræðir um aukið hlutverk verkfræðinga í hönnun umhverfisvænna nýjunga. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við VFÍ og fer fram í Öskju, stofu 132, miðvikudaginn 27. apríl og hefst kl. 14:30.








