Orkuskiptin eru á dagskrá

Í fjármála- og iðnaðarráðuneytinu vinnur Oddný G. Harðardóttir, ráðherra að nýjum orkuskiptum á Íslandi. Við höfum gert þetta áður þegar við skiptum yfir í hitaveitu og eigum fyrir höndum ný orkuskipti úr olíu og bensíni í umhverfisvæna orkugjafa í samgöngum. Fyrst þarf að treysta innviðina og gera veginn klárann áður en brunað er af stað. [...]

Græna orkan

Græna orkan

Græna orkan er heiti á klasasamstarfi um orkuskipti sem miðar að því að auka hlut visthæfra innlendra orkugjafa í samgöngum á kostnað innflutts kolefnaeldsneytis. Iðnaðarráðherra hafði forgöngu um verkefnið sem undirbúið var í samstarfi við önnur ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög og hefur skipað verkefnisstjórn til að þróa samstarfið áfram og fá fleiri þátttakendur og samstarfsaðila til liðs við Grænu orkuna.