Jón Gnarr – Okkur má ekki vera sama!
Reykjavík, sem borg hefur möguleika, sem aðrar borgir hafa ekki séns í, við höfum möguleika á að geta orðið, ef við tækjum höndum saman, hreinasta og grænasta borg í heimi.
Lífræn ræktun í heimilisgörðum
Skaftárhreppur tekur þátt í Grænum apríl og býður upp á ýmsa viðburði í mánuðinum.
Föstudaginn 8. apríl nk. verður Jóhanna B. Magnúsdóttir með fyrirlestur um lífræna ræktun í heimilisgörðum. Fyrirlesturinn verður á Hótel Geirlandi og hefst kl. 20:30.
Svanurinn auðveldar þér valið
Svanurinn og Umhverfisstofnun eru grænjaxlar og taka þátt í Grænum apríl af heilum hug.
Umhverfismerkingar auðvelda þér að taka upplýstar ákvarðanir þegar þú verslar. Þú getur treyst því að viðkomandi vara og þjónusta standist ströngustu umhverfis- og heilsukröfur.
Kínverjar með áhyggjur af umhverfi og loftslagi
Í grein eftir Andrew Jacobs, sem birt var nýlega í New York Times, fjallar hann um óvanalega og blákalda viðvörun frá umhverfisráðherra Kína um afleiðingar þess taumlausa efnahagsvaxtar sem verið hefur á andrúmsloft landsins, vatn og jarðveg. Þar sagði meðal annars að ef haldið væri áfram á núverandi braut myndi það geta heft langtíma efnahagsþróun og leitt til óstöðugleika í samfélaginu.








