Kaffitár er grænjaxl
Fyrstu og einu veitinga/kaffihús landsins sem eru með Svansvottun eru 8 kaffihús Kaffitárs. Þau ásamt eldhúsi Kaffitárs fengu vottun 2010. Kaffitár er grænjaxl og vekur athygli þína á Grænum apríl. Kaffitár hefur um árabil flokkað allt rusl og úrgang en með Svansvottuninni var gengið enn lengra. Allt lífrænt efni úr eldhúsi Kaffitárs og kaffihúsum t.d. allur kaffikorgur fer í moltugerð.








