Skógrækt í Selfjalli
Árið 2009 var gerður samningur milli Kópavogsbæjar, Skógræktarfélags Kópavogs og Skógræktarfélags Íslands um skógrækt og uppgræðslu í Selfjalli í Lækjarbotnum. Alls er svæðið um 143 ha. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi yfir til ársins 2020 og að árlega verði gróðursettar liðlega 12.000 trjáplöntur á svæðinu og uppgræðsla nái til um 6 ha lands á ári hverju.
Skógar- og fjölskylduganga Skógræktarfélags Kópavogs
Skógræktarfélag Kópavogs stendur fyrir skógar- og fjölskyldugöngu fimmtudaginn 28. apríl, í samvinnu við umhverfissvið Kópavogsbæjar. Gangan er í tilefni af Grænum apríl, Degi umhverfisins þann 25. apríl og að Sameinuðu þjóðirnar hafa tileiknað skógum heimsins árið 2011.
SORPA er grænjaxl
SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garðabær og Álftanes. SORPA fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og er sannkallaður grænjaxl
Kópavogsbær er grænjaxl
Kópavogsbær er Grænjaxl. Kópavogsbær hefur unnið ötullega að umhverfismálum undanfarna áratugi en sést það einkum á fallegum opnum svæðum og frágangi og umhverfi íbúðarsvæða. Síðustu misseri hefur verið unnið að því að gera metnaðarfulla stefnu varðandi ýmsa þætti í umhverfismálum með það í forgrunni að bæta lífsgæði íbúa og vernda náttúru- og menningarminjar.
Stútfull askja af kærleik
Leikskólinn Álfaheiði í Kópavogi vinnur með námsefnið Lífsmennt sem byggir á 12 jákvæðum lífsgildum. Lífsgildin leggja áherslu á virðingu og reisn allra manna, samfélagsins og virðingu gagnvart jörðinni okkar.








