Farfuglaheimilin í Reykjavík hljóta Kuðunginn
Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins, Kuðungurinn, var veitt í 16. sinn í dag og kom að þessu sinni í hlut Farfuglaheimilanna í Reykjavík fyrir framlag sitt til umhverfismála á síðastliðnu ári. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, afhenti verðlaunin við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag og sagði Farfuglaheimilin í Reykjavík vel að verðlaununum komin.
Umhverfisleikir og rathlaup í Grasagarðinum
Árlegum Degi umhverfisins verður fagnað í Grasagarðinum með fjörugum umhverfisleikjum fyrir alla fjölskylduna, laugardaginn 30. apríl frá kl. 11-14. Einnig verður öllum boðið að ganga eftir „ónáttúrulega stígnum“ en við hann er ýmislegt forvitnilegt að finna sem alla jafna á ekki heima í Grasagarðinum. Auk þess munu félagar í Rathlaupsfélaginu Heklu kynna rathlaup fyrir gestum og leiðbeina þeim um nýja rathlaupsbraut í Laugardal.
Farfuglar eru grænjaxl!
Farfuglaheimilin á Íslandi eru 37 talsins og bjóða upp á gistingu um allt land. Vinna farfuglaheimilanna er grundvölluð á Gæðastöðlum Farfugla og umhverfsstefnu samtakanna sem var birt árið 1999 en til að vera innan keðjunnar þarf að uppfylla
skilyrði á sviði umhverfismála.
Gló er grænjaxl
Gló er lífrænn veitingastaður í Listhúsinu, Laugardal. Gló er grænjaxl og tekur heilshugar þátt í Grænum apríl.
Á Gló er lögð áhersla á heildarupplifun gesta af heimsókninni á staðinn með samspili góðrar hönnunnar og hollrar fæðu.
Skógarleiðangur í Laugardal
Hvar finnum við tré? Hvað heyrist í þeim? Hvernig lykt er af þeim? Hvers vegna stækka þau? Hvað verða þau eiginlega gömul? Í könnunarleiðangri um garðinn munu börn og kennarar finna svör við þessum spurningum og fjölmörgum fleiri. Skógarleiðangrar eru farnir í Laugardal dagana 4.-8. apríl kl. 9.15-11.15








