Hinn ósýnilegi óvinur

Fiskar kafna í menguðu vatni. Hreint loft er lífsnauðsyn fyrir okkur öll.

Fiskar sem synda um í fiskabúri með óhreinu vatni munu að endingu sýkjast og deyja, sé ekki skipt um vatn. Við sem „syndum“ um í menguðum lofthjúpi virðumst ekki skilja að okkar bíða sömu örlög og fiskanna, þ.e. að veikjast og deyja, hugsanlega fyrr en þyrfti að vera vegna þeirrar mengunar sem við öndum að okkur.