Jón Gnarr – Okkur má ekki vera sama!
Reykjavík, sem borg hefur möguleika, sem aðrar borgir hafa ekki séns í, við höfum möguleika á að geta orðið, ef við tækjum höndum saman, hreinasta og grænasta borg í heimi.
Kaffitár er grænjaxl
Fyrstu og einu veitinga/kaffihús landsins sem eru með Svansvottun eru 8 kaffihús Kaffitárs. Þau ásamt eldhúsi Kaffitárs fengu vottun 2010. Kaffitár er grænjaxl og vekur athygli þína á Grænum apríl. Kaffitár hefur um árabil flokkað allt rusl og úrgang en með Svansvottuninni var gengið enn lengra. Allt lífrænt efni úr eldhúsi Kaffitárs og kaffihúsum t.d. allur kaffikorgur fer í moltugerð.
Vissir þú að…
Það er skemmtileg dægrastytting að rýna í tölfræði, sem tengist lífsháttum okkar og umhverfi. Hér eru nokkrar blákaldar staðreyndir.








