SEEDS pakkar góðum ráðum Náttúrunnar
Á undanförnum dögum hafa átta sjálfboðaliðar frá SEEDS samtökunum unnið fyrir Náttúruna að því að flokka „Náttúruspil – 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið“ í stokka og kassa til dreifingar en Náttúran.is hefur í hyggju að dreifa 150 þúsund góðum ráðum í Reykjavík og á landsbyggðinni í tilefni af Grænum apríl.
Náttúran er grænjaxl
Náttúran.is er upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt. Náttúran.is er grænjaxl og vinnur með Grænum apríl að því að vekja athygli á grænum og umhverfisvænum vörum, þjónustu og þekkingu í mánuðinum.
Þátttakendur í Grænum apríl á Græna kortinu
Þátttakendur í Grænum apríl hafa nú fengið sérstakan flokk á Græna Íslandskortinu á natturan.is.
Grænkortakerfið/Green Map® System, er alþjóðlegt flokkunarkerfi sem skilgreinir aðila/fyrirbæri sem talist geta hluti af grænu hagkerfi, menningu og náttúrunni. Flokkarnir hér á landi eru 100 að tölu og skráðir aðilar og fyrirbæri um 3.000.
Náttúran gefur góð ráð!
Natturan.is gefur góð ráð í grænum aprílmánuði og algjörlega ókeypis.








