Græn upplýsingatækni
Nýherji býður til morgunverðarfundar um græna upplýsingatækni í ráðstefnusal félagsins í Borgartúni í fyrramálið, miðvikudaginn 11. apríl. Morgunverðarfundurinn hefst kl. 08:30 og lýkur kl. 10:40. Margir góðir fyrirlesarar taka til máls og er um að gera að mæta og skoða áhrif upplýsingatækni á umhverfið og lausnir, sem þar gætu falist.
Engin framtíð án heilbrigðrar plánetu!
Peter Head, sem er framkvæmdastjóri hjá Arup verkfræðistofunni í Bretlandi, ræðir um aukið hlutverk verkfræðinga í hönnun umhverfisvænna nýjunga. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við VFÍ og fer fram í Öskju, stofu 132, miðvikudaginn 27. apríl og hefst kl. 14:30.








