Blái herinn
Tómas J. Knútsson, atvinnukafari, stofnaði Bláa herinn og hefur á þeim 15 árum, sem liðin eru frá stofnun haft forgöngu um að hreinsa hundruðir tonna af rusli frá ströndum landsins. Hundruðir rafgeyma hafa skilað sér upp úr höfnum í endurvinnslu. Einnig hefur Tómas verið óþreytandi við að virkja ungmennin í kringum sig til starfa og þar með vakið með þeim kærleika fyrir umhverfinu.








