Reykjavíkurborg sækir ruslið!

ruslatinsla

Á sunnudag, Degi jarðar, þegar við fjölmennum út á strætim, torg og bersvæði borgarinnar kl.12.30 – eru bæði Sorpa og starfsmenn hreinsunardeildarinnar á vaktinni.

Borgarstjóri á hjóli

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr elskar hjólið sitt og nýtir það eins oft og hann getur.

Einn svartur ruslapoki

Ruslið í Reykjavík

Grænn apríl skorar á alla Reykvíkinga að fara út með einn svartan ruslapoka og fylla hann af drasli og rusli, em er að finna í næsta nágrenni. Fyllum pokann og tökum til í borginni okkar.

Sjálfbært skipulag – Dæmi Háskólasvæðið

Háskólasvæði HÍ

Kreppan þrýstir á um sjálfbærnihugsun því fólk hefur minni tekjur og bensínverð hefur hækkað. Margir veigra sig því við löngum akstursleiðum, t.d. frá úthverfunum, og vilja frekar búa miðlægt. Til að geta dregið úr akstri og mætt óskinni um að búa miðlægt þarf að stefna að skipulagi sem eykur þéttleika í eldri hluta Reykjavíkur og leyfa meiri blöndun , t.d. með byggingu íbúðarhúsnæðis nálægt stórum vinnustöðum, eins og t.d. á Háskólasvæðinu. Þetta mundi minnka bílaumferð á Hringbraut og innan svæðins, fækka bílastæðum og spara fólki tíma.

Barnamenningarhátíð í Reykjavík

Barnamenningarhátíð

Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 17.-22. apríl 2012. 

Þema hátíðarinnar er Uppspretta og endurspeglast það með ólíkum hætti í tæplega 200 viðburðum sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu!

Grænt skrifstofuhald

Græn viðskipti og starfsemi

Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar eru áhugaverð fyrir þau fyrirtæki innan borgarinnar, sem ekki hafa þegar skráð sig í verkefnið, fyrir birgja borgarinnar og önnur fyrirtæki, sem vilja stíga fyrstu grænu skrefin í skrifstofuhaldi sínu.

Græn skref Reykjavíkurborgar

Rekstur stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar á að vera til fyrirmyndar. Verkefnið er að feta veginn í átt til betri framtíðar. Ríflega 30 fyrirtæki hafa þegar stigið grænu skrefin í Reykjavík og eru aðrir hvattir til að fylgja í kjölfarið.

Jarðarstundin tókst vel

Earth Hour Iceland 2012

Jarðarstundin heppnaðist mjög vel í miðborg Reykjavíkur. Götuljósin í miðborginni voru ekki kveikt fyrr en 21.35. Öll lýsing var takmörkuð og slökkt var á nokkrum áberandi byggingum sem iðulega eru upplýstar.

Farfuglaheimilin í Reykjavík hljóta Kuðunginn

farfuglar-kudungur

Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins, Kuðungurinn, var veitt í 16. sinn í dag og kom að þessu sinni í hlut Farfuglaheimilanna í Reykjavík fyrir framlag sitt til umhverfismála á síðastliðnu ári. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, afhenti verðlaunin við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag og sagði Farfuglaheimilin í Reykjavík vel að verðlaununum komin.

Jón Gnarr – Okkur má ekki vera sama!

Jón Gnarr, Borgarstjóri, Reykjavík

Reykjavík, sem borg hefur möguleika, sem aðrar borgir hafa ekki séns í, við höfum möguleika á að geta orðið, ef við tækjum höndum saman, hreinasta og grænasta borg í heimi.

Síðasti snúningur

Nagladekk

Nagladekk eru bönnuð á götum Reykjavíkur eftir 15. apríl. Engin ástæða er til að vera á nöglum í borginni enda hefur slíkum hjólbörðum stórlega fækkað á liðnum árum. 34% bifreiða reyndust á nöglum í marsmánuði.

Stórt skref fyrir fuglana á Tjörninni

Friðland Vatnsmýri

Í dag undirrituðu borgarstjórinn í Reykjavík, rektor Háskóla Íslands og forstöðumaður Norræna hússins erindisbréf um verkefni um friðland í Vatnsmýri.

SORPA er grænjaxl

Sorpa 20 ára merki

SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garðabær og Álftanes. SORPA fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og er sannkallaður grænjaxl

Græn Reykjavík

Græna Reykjavík

Opinn fundur umhverfis- og samgönguráðs þriðjudaginn 12. apríl kl. 16-18 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur er hluti af dagskrá Reykjavíkurborgar í Grænum apríl.

Leikskólabörn læra um náttúruna í grænum apríl

Grænn apríl í Reykjavík

Reykjavíkurborg leggur áherslu á grænu málin í aprílmánuði með því að taka þátt í Evrópskum orkudögum og Grænum apríl. Leikskólabörn voru í Laugardalnum í morgun, 6. apríl, í náttúrukennslu og á morgun verður málþing um græn ferðalög.

Ferðalög framtíðar: græn, blá eða grá?

Listahátíð í Reykjavík

Reykjavíkurborg stendur fyrir málstofu um umhverfisvæna ferðaþjónustu í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns, fimmtudaginn 7. apríl kl. 08:30-10:00.

Þingið tekur Grænum apríl fagnandi

Alþingi - grænn apríl barmmerki

Þingmenn, ráðherrar og starfsfólk Alþingis tóku fagnandi við merki Græns apríl, fimmtudaginn 31. mars. Þetta var upphafið að átakinu, sem stendur allan mánuðinn.

Reykjavíkurborg er grænjaxl

Reykjavík, ráðhúsið

Reykjavíkurborg er grænjaxl og fjölmargar aðgerðir og viðburðir eru á prjónunum, sem kynntir verða í apríl, þar sem græni kosturinn er valinn í starfi borgarinnar.

Hinn ósýnilegi óvinur

Fiskar kafna í menguðu vatni. Hreint loft er lífsnauðsyn fyrir okkur öll.

Fiskar sem synda um í fiskabúri með óhreinu vatni munu að endingu sýkjast og deyja, sé ekki skipt um vatn. Við sem „syndum“ um í menguðum lofthjúpi virðumst ekki skilja að okkar bíða sömu örlög og fiskanna, þ.e. að veikjast og deyja, hugsanlega fyrr en þyrfti að vera vegna þeirrar mengunar sem við öndum að okkur.